Bandaríkin draga úr hernaðarframlögum til NATO á hættu-og ófriðartímum Arnór Sigurjónsson skrifar 27. maí 2026 10:01 Samkvæmt upplýsingum frá dagblaðinu Spiegel dagsett 26/5 hefur bandaríski varnarmálaráðherrann upplýst aðildarþjóðir Atlantshafsbandalagsins um verulega skerðingu á framlögum Bandaríkjanna til varna bandalagsins á hættu- eða ófriðartímum. Undirritaður hefur áður varað við þeirri þróun að í stað þess að draga Bandaríkin út úr bandalaginu eins og Trump forseti hefur áður hótað hefur hann og stjórn hans ákveðið að draga úr framlögum til þess. Þar með er sú sviðsmynd að eftir standi veikara NATO til að bregðast við óvæntum hættum eða árásum að raungerast. Ekki verður lengur hægt að framkvæma varnaráætlanir bandalagsins sem verja eiga aðildarþjóðirnar með sama hætti eftir þennan niðurskurð á bandarískum herstyrk. NATO varnarmódelið sem samþykkt var í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu og núverandi varnaráætlanir eru í uppnámi. Þeirri spurningu hvort Evrópuþjóðirnar geti bætt þessa skerðingu á bandarískum framlögum til NATO er auðsvarað. Það verður ekki hægt til skamms tíma vegna þess hversu sérhæfð og öflug bandarísku hernaðaframlögin eru. Eftirfarandi er það helsta sem fram hefur komið um ofangreindan niðurskurð: Um það bil 30% færri orustuþotur sem í þessu tilfelli eru nokkur hundruð. Um það bil 50% langdrægra sprengjuflugvéla sem geta borið kjarnorkuvopn sem telja má í tugum. Færri tundurspillar og önnur herskip. Engir árásarkafbátar og óvíst um fjölda kafbáta sem borið geta kjarnorkuvopn. Ísland hefur verið viðkomuhöfn bandarískra árásarkafbáta sem halda uppi eftirlit á Norður-Atlantshafi. Fækka langdrægum eftirlits- og upplýsingadrónum. Þessar breytingar á bandarískum hernaðarframlögum til NATO verða eflaust til umræðu á leiðtogafundi bandalagsins í Ankara í sumar. Stjórn Trumps forseta segir eðlilegt að Evrópa verji sig sjálft og að þessar ráðstafanir séu sjálfsagður hlutur í þeirri þróun. En ljóst er að þrátt fyrir allar fullyrðingar um óbreytta og kraftmikla starfsemi NATO mun þessi ákvörðun veikja getu þess til að koma aðildarþjóðunum til varnar á ófriðar-eða hættutímum að minnsta kosti til skemmri tíma. Hvað íslensk stjórnvöld varðar er þetta áminning um það hversu hættulegt það er fyrir fullveldi og sjálfstæði Íslands að treysta algjörlega á landvarnir sem einskorðast við NATO og Bandaríkin. Landvarnir sem Íslendingar ætla ekki að taka þátt í umfram það að vera gistiríki á öryggissvæði Keflavíkurflugvallar. Við getum og eigum að hafa sjálfstæða varnargetu til að bregðast við óvæntum eða fyrirvaralausum árásum. Við eigum að hafna varnarstefnu uppgjafar! Höfundur er sérfræðingur í varnarmálum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnór Sigurjónsson NATO Öryggis- og varnarmál Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar