Hvaleyrarvatn - ekki byggja í Vatnshlíð Stefán Georgsson skrifar 30. maí 2026 23:30 Svæðið kringum Hvaleyrarvatn er ómetanleg perla fyrir Hafnfirðinga og aðra sem njóta þess. Það að geta notið útivistar í ósnortinni náttúru er mikils virði og hefur góð áhrif á andlegt og líkamlegt heilbrigði. Þá er svæðið aðgengilegt og því geta flestir notið þessarar náttúruperlu í nágrenni við þéttbýlið. Í tillögu að nýju Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040 er gert ráð fyrir íbúðabyggð í og við Vatnshlíð, svæði merkt ÍB12. Þetta svæði, sérstaklega svæðið næst Hvaleyrarvatni er mikið notað útivistarsvæði og tengist beint stígakerfinu við Hvaleyararvatn. Þá er Vatnshlíðin ofan Hvaleyrarvatns mjög áberandi í heildarásýnd svæðisins. Á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar segir um svæðið: “Hvaleyrarvatn og umhverfi er eitt það fallegasta á höfuðborgarsvæðinu. Margar gönguleiðir eru á svæðinu og öllum er frjálst að veiða í vatninu.” Hvers konar íbúðabyggð hvað þá háreistar byggingar (allt að 5 hæðir) niður undir miðja Vatnshlíð munu hafa veruleg neikvæð áhrif á gæði útivistarsvæðisins við Hvaleyrarvatn og þannig hafa slæm áhrif á líðan fjölmargra Íslendinga Það að geta notið útivistar í ósnortinni náttúru fjarri ys og þys borgarbyggðar er mikils virði og hefur góð áhrif á andlegt og líkamlegt heilbrigði. Einstök veðursæld er á svæðinu sem ekki er að finna annars staðar í upplandi Hafnarfjarðar. Þess vegna sækir fólk þangað nánast allan ársins hring. Ef þörf er á að byggja þann fjölda íbúða sem gert er ráð fyrir í skipulagi verður að leysa það öðruvísi, til dæmis með færri einbýlishúsum eða færslu annarrar starfsemi út fyrir það svæði sem skilgreint er fyrir íbúðarbyggð. Farið er fram á að skipulagi verði breytt þannig að fyrirhuguð byggð muni ekki sjást frá Hvaleyrarvatni. Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér skipulagið á Skipulagsgátt, hægt er að gera athugasemdir til 18. júní. Þá er í gangi undirskriftarsöfnun á Ísland.is þar sem rúmlega 1000 undirskriftir hafa þegar borist. Höfundur er íbúi í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hafnarfjörður Skipulagsmál Mest lesið Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Svæðið kringum Hvaleyrarvatn er ómetanleg perla fyrir Hafnfirðinga og aðra sem njóta þess. Það að geta notið útivistar í ósnortinni náttúru er mikils virði og hefur góð áhrif á andlegt og líkamlegt heilbrigði. Þá er svæðið aðgengilegt og því geta flestir notið þessarar náttúruperlu í nágrenni við þéttbýlið. Í tillögu að nýju Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040 er gert ráð fyrir íbúðabyggð í og við Vatnshlíð, svæði merkt ÍB12. Þetta svæði, sérstaklega svæðið næst Hvaleyrarvatni er mikið notað útivistarsvæði og tengist beint stígakerfinu við Hvaleyararvatn. Þá er Vatnshlíðin ofan Hvaleyrarvatns mjög áberandi í heildarásýnd svæðisins. Á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar segir um svæðið: “Hvaleyrarvatn og umhverfi er eitt það fallegasta á höfuðborgarsvæðinu. Margar gönguleiðir eru á svæðinu og öllum er frjálst að veiða í vatninu.” Hvers konar íbúðabyggð hvað þá háreistar byggingar (allt að 5 hæðir) niður undir miðja Vatnshlíð munu hafa veruleg neikvæð áhrif á gæði útivistarsvæðisins við Hvaleyrarvatn og þannig hafa slæm áhrif á líðan fjölmargra Íslendinga Það að geta notið útivistar í ósnortinni náttúru fjarri ys og þys borgarbyggðar er mikils virði og hefur góð áhrif á andlegt og líkamlegt heilbrigði. Einstök veðursæld er á svæðinu sem ekki er að finna annars staðar í upplandi Hafnarfjarðar. Þess vegna sækir fólk þangað nánast allan ársins hring. Ef þörf er á að byggja þann fjölda íbúða sem gert er ráð fyrir í skipulagi verður að leysa það öðruvísi, til dæmis með færri einbýlishúsum eða færslu annarrar starfsemi út fyrir það svæði sem skilgreint er fyrir íbúðarbyggð. Farið er fram á að skipulagi verði breytt þannig að fyrirhuguð byggð muni ekki sjást frá Hvaleyrarvatni. Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér skipulagið á Skipulagsgátt, hægt er að gera athugasemdir til 18. júní. Þá er í gangi undirskriftarsöfnun á Ísland.is þar sem rúmlega 1000 undirskriftir hafa þegar borist. Höfundur er íbúi í Hafnarfirði.
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar