Innlent

Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni

Kristján Már Unnarsson skrifar
Matthías Sveinbjörnsson, forseti Flugmálafélags Íslands.
Matthías Sveinbjörnsson, forseti Flugmálafélags Íslands. Egill Aðalsteinsson

Flugáhugamenn sem lögðu leið sína á hina árlegu flugsýningu Flugmálafélags Íslands á Reykjavíkurflugvelli í gær undruðust margir að sjá enga af þotum Icelandair birtast, hvorki á flugvellinum sjálfum né í yfirflugi yfir hann. Sumir spurðu sig jafnvel hvort samskipti félagsins og flugmanna þess væru í slíku frosti að ekki væri einu sinni hægt að taka þátt í flughátíð.

Sérstaklega söknuðu menn þess að sjá ekki Boeing 757-þotuna í ljósi þess að Icelandair hefur lýst því yfir að þetta verði síðasta sumar hennar í rekstri félagsins. Þarna hafi því hugsanlega verið síðasta tækifærið til að kveðja þessa einstöku flugvél íslenskrar flugsögu á flugsýningu á Reykjavíkurflugvelli.

Boeing 757-fraktþota Icelandair á flugsýningu á Reykjavíkurflugvelli árið 2019. Áhorfendur fylgjast með þotunni aka af stæði og í flugtaksstöðu.KMU

757-þotan hefur í gegnum árin stundum verið einn af hápunktum sýningarinnar. Hún hefur verið höfð til sýnis almenningi á jörðu niðri og gestum jafnvel boðið að ganga um borð. Hún hefur lent og tekið á loft eða flogið lágflug yfir vellinum. 

Ekkert af þessu gerðist núna og raunar var ekki minnst á þátttöku Icelandair í fréttatilkynningu Flugmálafélagsins til fjölmiðla um helstu dagskráratriði flugsýningarinnar.

Horft úr Boeing 757-þotu Icelandair í útsýnisflugi sumarið 2018. Reykjavíkurflugvöllur sést undir vængnum.Vilhelm

Fréttastofa spurði Matthías Sveinbjörnsson, forseta Flugmálafélagsins, um þátttöku Icelandair á flugsýningunni í ár:

„Þeir vildu ekki vera með yfirflug á meðan Vestmannaeyjaflugið er óklárað. Þess vegna var ekkert atriði hjá þeim,“ sagði Matthías.

Hann sagði Icelandair þó ekki hafa verið fjarverandi né flugmenn þess. Dash 8 Q400-vél hefði verið til sýnis og flugmenn verið til viðtals fyrir gesti og gangandi.

Boeing 757-þota Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ í byrjun aprílmánaðar. Þetta atvik er sögð ástæða þess að gestir flugsýningar á Reykjavíkurflugvelli í gær fengu ekki að sjá þotu frá Icelandair fljúga yfir.Vísir

Fréttamaður velti þeim möguleika upp við Matthías hvort fjarvera þotuflota Icelandair á flugsýningunni gæti tengst spennu vegna flugmannasamninga:

„Ég held ekki. Það hefur legið lengi fyrir að það væri ekki vél tiltæk í þetta verkefni. Það að fljúga úr flugáætlun með fullborgandi farþega yfir sýningar er líklega liðin tíð eftir Vestmannaeyjaflugið fræga,“ sagði forseti Flugmálafélagsins en bætti við:

„Þetta lagast vonandi fyrir næstu sýningu en þá verður félagið 90 ára.“

Hér má rifja upp viðtal við Matthías og sjá myndir frá flugsýningu fyrir þremur árum. Þar sést Icelandair-þota fljúga yfir:


Tengdar fréttir

Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli

Flugveislu er lofað á árlegri flugsýningu Flugmálafélags Íslands sem fram fer á Reykjavíkurflugvelli eftir hádegi í dag, laugardag. Fjölbreytt úrval loftfara af öllum stærðum og gerðum verður til sýnis, bæði á flugi og á jörðu niðri á sýningarsvæðinu.

Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna

Fleiri myndskeið sem birst hafa af lágflugi farþegaþotu Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ á laugardag virðast sýna með óyggjandi hætti að flugvélinni var flogið langt undir lögbundinni lágmarksflughæð. Forstjóri Icelandair segir félagið líta málið mjög alvarlegum augum en það er núna komið til rannsóknar Samgöngustofu.

Flug­sýning einn af stærstu menningar­við­burðum borgarinnar

Þúsundir manna sóttu flugsýningu á Reykjavíkurflugvelli í dag þar sem sjá mátti þverskurð íslenska fluggeirans, allt frá litlum drónum upp í stórar farþegaþotur. Margir tóku andköf þegar djarfir listflugmenn veltu sér um háloftin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×