„Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 1. júní 2026 11:53 Sigurður var vistaður í fangelsinu á Hólmsheiði. vísir/vilhelm Fangelsismálastjóri segir andrúmsloftið þungt innan veggja fangelsins á Hólmsheiði eftir að maður lést þar um helgina. Bæði starfsfólk og fangar séu harmi slegnir. Sá látni var ekki í einangrun og ekki er grunur um að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Maðurinn sem lést í fangelsinu á Hólmsheiði aðfaranótt sunnudags hét Sigurður Fannar Þórsson. Hann afplánaði sextán ára dóm fyrir að hafa orðið dóttur sinni að bana við Krýsuvíkurveg í september árið 2024. Hann játaði sök í málinu á sínum tíma en bar fyrir sig minnisleysi. Þá hafði hann glímt við alvarleg andleg veikindi um einhvern tíma. Ragna Bjarnadóttir, forstjóri Fangelsismálastofnunar, segir andrúmsloftið þungt innan veggja fangelsa landsins. „Ég vil auðvitað bara segja það að það eru allir harmi slegnir þegar það kemur svona upp og það skiptir máli að það sé vel hlúið að fólki og það á auðvitað við um aðstandendur, samfanga og starfsfólk. Það er það sem maður vill leggja mesta áherslu á. Meðferðarsvið Fangelsismálastofnunar fer á staðinn ásamt fangapresti. Það er líka félagastuðningur sem er boðið upp á til þess að reyna að grípa fólk. Svo ber okkur líka að upplýsa umboðsmann Alþingis sem á grundvelli þessa svokallaða OPCAT-eftirlits fer með eftirlit með stöðum þar sem frelsissviptir einstaklingar eru.“ Er tilefni til að skoða hvort það sé hægt að sinna eftirliti betur með þeim sem eru taldir í sjálfsvígshættu eða styðja betur við þá? „Þar vil ég aftur segja að ef það er grunur um slíkt að þá er það bæði meðferðarsvið Fangelsismálastofnunar og heilbrigðisþjónustun, bæði almennir heilbrigðisstarfsmenn en líka geðteymið, sem stígur mjög fast inn í málið og fangaverðir. Þetta verklag fer af stað og þá er eftirlitið aukið. Auðvitað gefur svona tilefni til þess að skoða allt verklag, bæði fyrir og eftir til þess að sjá hvort það sé eitthvað sem við getum gert betur. Við munum skoða þetta og fara yfir þetta.“ Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Sigurður var ekki í einangrun umrædda nótt. Ekki er grunur um að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Athygli hefur vakið að Sigurður hafi verið vistaður á Hólmsheiði en ekki Litla-Hrauni. „Auðvitað er það kannski hefðbundnasta leiðin að viðkomandi væri á Litla Hrauni. Fangelsismálastofnun tekur ákvörðun um vistunarstað og byggir það á heildstæðu mati og það þarf að meta þetta út frá öryggissjónarmiðum, út frá hagsmunum fangans og út frá fleiri þáttum í hverju tilviki fyrir sig.“ Andlát í fangelsum landsins eru ekki algeng en gerast þó. Síðast var fjallað um andlát manns á Hólmsheiði árið 2023. Einnig var greint frá andláti manns á Litla-Hrauni árið 2024. Sævar Þór Jónsson, lögmaður Sigurðar, sagði málið vekja upp alvarlegar og kerfislægar spurningar um aðbúnað og öryggi fanga í skriflegu svari til fréttastofu: „Það er engin betrun fólgin í því að læsa einstaklinga inni í klefum sínum klukkutímum saman án fullnægjandi eftirlits, sérstaklega þegar í hlut eiga berskjaldaðir einstaklingar í brothættu andlegu ástandi. Það er knýjandi nauðsyn að knýja á um svör og rannsaka hvort eftirliti innan fangelsiskerfisins sé ábótavant og hvernig geðheilbrigðismat og áhættumat fanga fer fram innanhúss,“ segir í yfirlýsingu Sævars. Ragna segir alltaf tilefni til að skoða hvað sé hægt að gera betur þegar kemur að geðheilbrigðisþjónustu fanga. „Ég held að það gefi augaleið. Okkar skjólstæðingahópur eru margir hverjir í þörf fyrir stuðning og aðstoð. Ég vil líka taka það fram að það hefur mjög margt jákvætt gerst þegar það kemur að heilbrigðisþjónustu almennt við fanga og þar á meðal geðheilbrigðisþjónustu. Ég er í samtali við Landspítalann um það að við viljum halda áfram að tala saman um hvernig er hægt að efla og ég held að við getum alltaf gert það.“ Ragna mun gera sér ferð á Hólmsheiði síðar í vikunni. „Ég er ekki búin að fara niður eftir sjálf hérna, en það fór fólk héðan frá Fangelsismálastofnun í gær. Og ég mun og hef heyrt aðeins í þeim. Ég mun sjálf fara í vikunni en það skiptir líka máli að það mæti kannski ekki heldur allir á sama tíma. Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir. Þetta er auðvitað bara mjög sorglegt mál í alla staði.“ Banaði dóttur sinni við Krýsuvíkurveg Fangelsismál Mest lesið Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Innlent Hótuðu að loka Vogi Innlent „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Innlent Tuttugu lögðu ólöglega Innlent Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Innlent Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Innlent Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Innlent Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts Erlent Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Innlent Fleiri fréttir Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Tuttugu lögðu ólöglega Brutust inn hjá fyrirtæki Skipuleggur eigin jarðarför Eldur í bíl í Heiðmörk Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Ný umgjörð um daggæslu til skoðunar í ráðuneytinu Verkefnið sem hófst á Twitter stækkað umtalsvert Allir dómarar vanhæfir í máli ljósmóður á eftirlaunum Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Sjá meira
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Banaði dóttur sinni við Krýsuvíkurveg Fangelsismál Mest lesið Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Innlent Hótuðu að loka Vogi Innlent „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Innlent Tuttugu lögðu ólöglega Innlent Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Innlent Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Innlent Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Innlent Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts Erlent Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Innlent Fleiri fréttir Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Tuttugu lögðu ólöglega Brutust inn hjá fyrirtæki Skipuleggur eigin jarðarför Eldur í bíl í Heiðmörk Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Ný umgjörð um daggæslu til skoðunar í ráðuneytinu Verkefnið sem hófst á Twitter stækkað umtalsvert Allir dómarar vanhæfir í máli ljósmóður á eftirlaunum Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Sjá meira