Lítið breyst á fimmtán árum Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 1. júní 2026 22:00 Þær Guðrún Erla Davíðsdóttir og Sif Huld Albertsdóttir sem sitja í stjórn Breiðra brosa segja mikilvægt að sérstakt teymi taki utan þessi börn. Vísir/Bjarni Foreldrar barna með skarð í vör og góm segja fátt grípa þau þegar börn þeirra fæðast. Við taki mikil óvissa og yfirsýn skorti í málaflokknum þar sem ekkert formlegt teymi heldur utan um mál þessara barna. Breytingar þurfi að verða.
Á hverju ári fæðast á bilinu fimm til sjö börn á Íslandi með skarð í vör eða góm. Mæður tveggja þessara barna eru þær Sif Huld Albertsdóttir og Gunnhildur Erla Davíðsdóttir. Fyrir um tveimur árum fæddist dóttir Gunnhildar Erlu. Hún segir að strax hafi tekið við mikil óvissa og leit að svörum. „Bara mjög einfalt tilfelli í rauninni og höfum eftir sem áður upplifað okkur mjög svona bara villt í bara kerfinu.“ Þannig hafi algjörlega skort eitthvað plan til að fylgja. „Bara öll samskipti við bæði spítalana og læknana. Það er einhvern veginn enginn sem segir sama hlutinn.“ Sonur Sifjar Huldar er sautján ára og eru því fimmtán ár á milli barnanna þeirra. Sif segir að sorglega lítið hafi breyst á þessum tíma. „Það er bara rosalega margt eins.“ Algjör óvissa Báðar sitja þær í stjórn Breiðra brosa sem eru samtök aðstandenda barna með skarð í vör og góm. Um helgina hittist hópurinn til að styrkja sig á sérstökum fjölskyldudegi. Hópurinn kallar eftir samtali við stjórnvöld vegna stöðunnar og segja að það sem valdi þeim hvað mestum áhyggjum sé skortur á yfirsýn og að ekkert formlegt teymi haldi utan um þjónustu fyrir börnin. Foreldrar hafi alla tíð þurft að berjast fyrir þjónustu fyrir börnin sín, hvort sem það varðar sérhæfðar aðgerðir, tannréttingar, þjónustu talmeinafræðinga, sérfræðilækna, ferðakostnað eða aðrar nauðsynlegar meðferðir. Á síðustu mánuðum hafa áhyggjur foreldranna aukist enn frekar eftir að foreldrar innan hópsins fengu þær upplýsingar að óvissa væri nú um kjálkaskurðaðgerðir fyrir þennan hóp hér á landi. „Við vitum ekki hvar, hvort það verði gert hér eða í útlöndum. Við erum bara í óvissu.“
Heilbrigðismál Tannheilsa Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira