Breyta hlaupaleiðum í Reykjavíkurmaraþoninu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. júní 2026 09:59 Fimm þúsund hafa skráð sig í hlaupið í ár. Vísir/Viktor Freyr Tekin hefur verið ákvörðun um að breyta hlaupaleiðum Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka sem haldið er ár hvert á Menningarnótt. Nú verður rásmarkið við Háskóla Íslands.
Ræst verður í öllum fimm vegalengdunum frá Sæmundargötu fyrir framan Háskóla Íslands og hlaupið í mark við Geirsgötu við Kolaportið. Í tilkynningu segir að frá rásmarkinu færist hlaupaleiðirnar inn á hlaupaleiðir síðustu ára. Einnig hafa verið gerðar breytingar á öllum hlaupaleiðum frá Granda. „Breytingar á hlaupaleiðum eru gerðar með það fyrir augum að auka aðgengi, yfirsýn og öryggi, bæði fyrir hlaupara og áhorfendur. Fjöldi þátttakenda og áhorfenda hefur farið vaxandi síðustu ár og því ljóst að aðstæður við bæði rásmark og endamark voru orðnar of þröngar,“ segir í fréttatilkynningunni. Hér má sjá hlaupaleiðirnar.Reykjavíkurmaraþon Einnig er tekið fram að með breytingunni verði dregið úr áhrifum hlaupsins á umferð um Hringbraut. Aukin þátttaka Fimm þúsund hafa skráð sig til leiks í hlaupinu en boðið er upp á fimm vegalengdir, maraþon, hálfmaraþon, tíu kílómetra og skemmtiskokk sem er annars vegar þrír kílómetrar og hins vegar 1,7 kílómetrar. Örlítið fleiri hafa skráð sig núna heldur en í fyrra. Á síðasta ári söfnuðust rúmlega 326 milljónir króna og hafa alls safnast yfir tveir milljarðar króna frá því að áheitasöfnun hófst árið 2006. „Við erum orðin mjög spennt fyrir hlaupinu í ár,“ er haft eftir Hrefnu Hlín Sveinbjörnsdóttur, sviðsstjóra hjá ÍBR. „Við teljum að þessar breytingar á hlaupaleiðinni muni skapa gott rými til að halda áfram að styðja við stöðugan vöxt og þróun Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka. Maraþonið er orðið fastur liður, jafnt fyrir þátttakendur sem og stuðningsfólk sem flykkist út á götur að hvetja. Við eigum von á því að það verði ekkert öðruvísi í ár.“
Reykjavíkurmaraþon Hlaup Reykjavík Íslandsbanki Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira