Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Atli Ísleifsson skrifar 3. júní 2026 08:33 Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Vísir/Vilhelm Viðvarandi óvissa í alþjóðlegum efnahagsmálum, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á viðnámsþrótt fjármálakerfisins á komandi misserum. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans sem birt var klukkan 8:30.
Í yfirlýsingunni segir að fjármálakerfið hér á landi sé traust og vel í stakk búið til að mæta ófyrirséðum áföllum. Fulltrúar Seðlabankans munu gera grein fyrir yfirlýsingunni á blaðamannafundi sem hefst klukkan 9:30 og verður hægt að fylgjast með í spilara neðst í fréttinni. Í yfirlýsingunni segir að fjárhagsstaða kerfislega mikilvægra banka sé sterk og aðgengi þeirra að markaðsfjármögnun greitt. „Viðvarandi óvissa í alþjóðlegum efnahagsmálum, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á viðnámsþrótt fjármálakerfisins á komandi misserum. Skuldahlutföll heimila og fyrirtækja eru almennt lág og vanskil lítil. Álagspróf Seðlabanka Íslands bendir til þess að stóru bankarnir þrír geti staðið af sér verulegt áfall án þess að skerða um of framboð lánsfjár til viðskiptavina,“ segir í yfirlýsingunni. Húsnæðisverð lækkað að raunvirði Fram kemur að húsnæðisverð hafi lækkað að raunvirði, íbúðum á sölu fjölgað og lengur taki að selja eignir, sérstaklega nýjar íbúðir. „Skuldir fyrirtækja í byggingastarfsemi hafa vaxið síðustu misseri og merki eru um vaxandi vanskil þótt þau séu enn tiltölulega lítil. Lánveitendur þurfa að gæta að aukinni áhættu í geiranum. Áhætta í rekstri fjármálainnviða hefur aukist. Vaxandi netógn hefur fylgt tæknivæðingu, þróun í gervigreind og óróa á alþjóðavettvangi. Mikilvægt er að Seðlabanki Íslands, önnur stjórnvöld og aðilar á fjármálamarkaði vinni markvisst saman að því að draga úr áhættu og að treysta viðbúnað svo hægt verði að bregðast skjótt og örugglega við alvarlegum rekstraratvikum og tryggja samfellu nauðsynlegrar fjármálaþjónustu. Samhæfður viðbúnaður gegn rekstraratvikum er grundvöllur fjármálastöðugleika,“ segir í yfirlýsingunni. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika. Vísir/Vilhelm Lausn kemur um mitt ár Í yfirlýsingu nefndarinnar segir ennfremur að kortagreiðslur í netleysi séu þýðingarmikill þáttur í viðnámsþrótti greiðslumiðlunar. „Sú lausn verður innleidd um mitt ár. Fjármálastöðugleikanefnd leggur áherslu á að fjölga þurfi greiðsluleiðum með innviðum fyrir nýjar greiðslulausnir, svo sem greiðslur með millifærslum. Fjölbreytni í greiðslumiðlun eykur seiglu fjármálakerfisins og dregur úr líkum á víðtækri röskun við alvarleg rekstraratvik. Fjármálastöðugleikanefnd hefur ákveðið að eftirfarandi innviðir teljist kerfislega mikilvægir og þess eðlis að röskun á starfsemi þeirra geti haft áhrif á fjármálastöðugleika: Millibankagreiðslukerfi Seðlabankans og verðbréfauppgjörskerfi Nasdaq sem grunninnviði fjármálakerfisins og innlánakerfi Reiknistofu bankanna, greiðslukerfi Reiknistofu bankanna og rafræn auðkenning í fjármálaþjónustu hjá Auðkenni ehf. sem kjarnainnviði fjármálakerfisins.“ Sveiflujöfnunarauki helst óbreyttur Fjármálastöðugleikanefnd hefur ákveðið að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5 prósent í samræmi við stefnu nefndarinnar um beitingu aukans. „Nefndin mun sem fyrr beita þeim stýritækjum sem hún hefur yfir að ráða til að varðveita fjármálastöðugleika þannig að fjármálakerfið geti staðist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti,“ segir í yfirlýsingunni. Vefútsending frá kynningu vegna yfirlýsingar nefndarinnar hefst klukkan 9:30. Þar munu Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður fjármálastöðugleikanefndar, og Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, gera grein fyrir yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar. Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan. Fréttin hefur verið uppfærð.
Seðlabankinn Efnahagsmál Íslenska krónan Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira