„Við nutum þess í botn að vera þarna“ Andri Broddason skrifar 6. júní 2026 07:01 Sara Björk er ánægð að vera komin heim í Hauka en dvöl hennar í Sádí-Arabíu var heillt yfir góð. vísir / vilhelm Sara Björk Gunnarsdóttir er snúin aftur heim til Hauka úr atvinnumennskunni. Hún hefur verið valin Íþróttamaður ársins tvisvar og er sigursælasti íslenski leikmaður sögunnar. Hún fékk móttöku við hæfi í knatthúsi Hauka.
Sara Björk Gunnarsdóttir segist hafa fundið að hún var tilbúin að flytja heim eftir langa dvöl erlendis í atvinnumennsku. Hún var ekki viss um hvort að hún myndi spila þegar hún kæmi heim en líkaminn er nógu góður til að spila að hennar mati. „Mér líður enn þá ótrúlega vel í líkamanum. Ég er sjálf eins og lítill krakki þó að líkamanum líði ekki þannig,“ sagði Sara Björk og útskýrir að það hafi ekki alltaf staðið til að hún myndi spila fyrir félagið. Hún ætlar þó að spila fyrir félagið á meðan líkaminn hennar leyfir. „Stelpurnar eru búnar að standa sig frábærlega og það verður gaman að koma inn í þetta.“ Sara Björk hefur spilað í hinum ýmsu löndum en síðast spilaði hún í Sádí-Arabíu en endalok hennar þar voru heldur skrítin. Bandaríkin hófu innrás í Íran í febrúar og gerði það dvölina í Sádí-Arabíu heldur óþægilega. „Þetta var mjög óhugnalegt. Okkur fannst óþægilegt að vera þarna úti,“ segir hún um átökin sem voru í nágrannaríkjunum. Yfirvöld í Sádí-Arabíu brýndu fyrir henni að það væri engin hætta á ferðum sökum góðs loftvarnakerfis. Þrátt fyrir að vera öllum vörnum búin hafði stríðið mikil áhrif, „við fundum alveg fyrir sprengjunum, eldflaugunum og drónunum. Það var ekkert sem lenti nálægt okkur en við vorum bara of nálægt þessu.“ Sara Björk nefnir að tíminn eftir innrás Bandaríkjanna hafi verið óþægilegur en að það sé ekki lýsandi fyrir Sádí-Arabíudvöl hennar í heild sinni. „Fyrir utan það var þetta yndislegur tími og við nutum þess í botn að vera þarna.“ Sara Björk mun koma sér vel fyrir í Hafnarfirðinum hjá Haukum enda minni líkur á loftárásum þar. Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að neðan. Klippa: Sara Björk komin heim í Hauka
Lengjudeild kvenna Haukar Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Hjörvar gaf goðsögninni búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Fleiri fréttir Hjörvar gaf goðsögninni búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Sjá meira