Fjármálastjórinn verður sveitarstjóri Agnar Már Másson skrifar 6. júní 2026 17:51 Bergþór er enginn nýgræðingur enda hefur hann stýrt fjármálum Norðurþings síðustu ár og verið staðgengill sveitarstjóra. Húsavík, Kópasker og Raufarhöfn eru stærstu þéttbýliskjarnarnir í Norðurþingi. Samsett Bergþór Bjarnason, fjármálastjóri Norðurþings, verður ráðinn sveitarstjóri sveitarfélagsins í næstu viku. Hann tekur við af Katrínu Sigurjónsdóttur, sem var einnig fagráðin. Fjögurra flokka meirihluti var myndaður í sveitarfélaginu eftir síðustu kosningar. „
Við erum búin að handsala við hann samkomulag,“ staðfestir Eysteinn Heiðar Kristjánsson, oddviti Framsóknar í sveitarfélaginu, í samtali við Vísi. Vikublaðið greindi fyrst frá ráðningunni eftir að oddviti D-listans upplýsti starfsfólk sveitarfélagsins um ráðninguna í tölvupósti í dag. Eftir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí var myndaður fjögurra flokka meirihluti með fulltrúum Framsóknar, Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Óskalistans. Fyrsti fundur nýrrar sveitarstjórnar verður haldinn fimmtudaginn 11. júní og í kjölfarið á honum verður ráðningarsamningur gerður við Bergþór. Eysteinn segir að Bergþór hafi orðið fyrir valinu vegna reynslu sinnar sem fjármálastjóri sveitarfélagsins, en Bergþór hefur starfað sem slíkur síðustu fjögur ár auk þess sem hann hefur verið staðgengill sveitarstjóra. „Hann er okkur góðkunnugur,“ bætir Eysteinn við. Bergþór er með BS-gráðu í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst og MLM-gráðu í forystu og stjórnun frá sama skóla. Áður en hann tók til starfa hjá sveitarfélaginu hafði hann starfað hjá Landsbankanum í 14 ár, þar af 11 ár sem útibússtjóri Landsbankans á Húsavík, Þórshöfn, Raufarhöfn og Kópaskeri. Nýr sveitarstjóri tekur við af Katrínu Sigurjónsdóttur sem hefur starfað sem sveitarstjóri frá byrjun síðasta kjörtímabils, 2022, þegar Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn mynduðu saman meirihluta í sveitarfélaginu. Ekki náðist í Berþór við vinnslu fréttar.
Norðurþing Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira