„Þetta er bara alveg svívirðilegt“ Agnar Már Másson skrifar 6. júní 2026 20:40 „Þorparar“ í Flatey efndu til þögulla mótmæla við bryggjuna í Flatey og báru þeir margir svört sorgarbönd til að mótmæla fjarveru Baldurs næstu vikurnar. Baldur átti sína síðustu viðkomu í Flatey í bili kl. 15 í dag. Aðsend „Það er allt í uppnámi af því hann [Baldur] er farinn,“ segir Björn Samúelsson, húseigandi í Flatey á Breiðafirði og varamaður í sveitarstjórn Reykhólahrepps. Hann skipulagði í dag þögul mótmæli við „svívirðilegri“ ákvörðun innviðaráðherra, sem ákvað nær fyrirvaralaust að senda Breiðafjarðarferjuna Baldur til Vestmannaeyja, þar sem hún mun leysa Herjólf tímabundið af hólmi.
Innviðaráðuneytið tilkynnti á þriðjudag að ferjan Baldur myndi sigla til og frá Vestmannaeyjum frá og með mánudegi, 8. júní, meðan unnið væri að viðgerð á einni vél í eyjaferjunni Herjólfi, sem bilaði í apríl. Viðgerð ætti að ljúka um miðjan júní. Þessi ákvörðun kom flatt upp á „þorparana“ í Flatey, þ.e. sumarhúseigendur og fólk með tengsl við eyjuna, sem efndu nokkrir til þögulla mótmæla við bryggjuna í Flatey kl. 15 í dag, eftir að Baldur hafði tekið sína síðustu Flateyjarferð í bili. Af mótmælunum í dag. Björn, einn skipuleggjenda mótmælanna, er varamaður í sveitarstjórn Reykhólahrepps. Hann segir að svo virðist sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hafi tekið ákvörðunina upp á sitt eindæmi. Akvörðunin komi á versta mögulega tíma; sumarvertíðin sé að hefjast, ferðaþjónustan í eynni að fara í gang og húseigendur farnir að huga að því að koma sér út í eyna. Fjöldi ferðamanna hafi sömuleiðis þegar átt bókaða ferð með ferjunni í júní. Þá hafði staðið til að opna Hótel Flatey í næstu viku, að sögn Björns, en þegar hefur ríkt mikil óvissa um rekstrarhorfur þess síðustu misseri. „Við bara trúðum ekki að hann myndi vera tekinn svona fyrirvaralaust,“ bætir Björn við í samtali við fréttastofu. Hefur litla trú á „tvíbytnunni“ sem hleypur í skarðið Sveitarfélögin Stykkishólmur, Vesturbyggð og Reykhólahreppur gáfu á föstudag út ályktun þar sem þau mótmæltu ákvörðun innviðaráðherra. Í tilkynningu ráðuneytisins kom fram að Herjólfur kæmi úr viðgerð um miðjan júní, en það kaupir Björn ekki. „Það er sagt að þetta sé vika en við vitum alveg að þetta verða þrjár, fjórar, fimm vikur. Þetta er ekkert búið, af því að Baldur er þarna á svæðinu í Vestmannaeyjum af því að Herjólfur er náttúrulega bara bilaður. Hann er ekkert að komast í lag. Og svo er náttúrulega alveg óskiljanlegt að Herjólfur 2 skuli ekki vera löngu kominn í lag og kominn með haffæri til þess að geta sinnt þessari leið á móti hinum Herjólfi. Í staðinn fyrir að rífa ferjuna af okkur hérna um þegar sísonið í ferðaþjónustunni er að byrja.“ Ferjan Særún á að sinna siglingum til Flateyjar á Breiðafirði í fjarveru Baldurs og tryggja þjónustu við samfélagið þar. Siglingaáætlun fyrir Breiðafjörð verður kynnt innan skamms. Það dugi þó ekki til, þar sem Baldur hefur flutt 12 til 20 tonn af vatni í hverri ferð til eyjarinnar. Ferjan sjái um sorphirðu frá eyjunni. Auk þess þurfi að flytja byggingarefni er flutt var út í júní fyrir viðhald húsa. Þá hafi Orkubú Vestfjarða einnig ætlað að flytja sólarsellur fyrir orkuskipti sem nú eru stopp. „Og það á að bjarga þessu öllu með tvíbytnu úr Stykkishólmi sem getur ekkert,“ segir Björn um Særúnu. „Hún getur ekki sinnt þessu eins og ferjan.“ Þetta kynni auk þess að hafa áhrif á þungaflutninga, t.d. á laxi, að sögn Björns, en hann segir að það hafi verið nýtt af flutningafyrirtækjum „til þess að sleppa við að keyra þessa ónýtu vegi“ um Dalasýslu og Reykholtsdalssveit. „Þingmaður okkar kjördæmis“ „Þetta er bara alveg svívirðilegt,“ heldur Björn áfram. „Ferjan er að þjónusta Vestfirðinn. Ferðaþjónustan er búin að bóka allan júní. Útlendingarnir eru náttúrulega löngu búnir að bóka og borga. Og nú þarf að fara að endurgreiða það allt aftur. Þetta er náttúrulega alveg fáránlegt. Bara út af einni ákvörðun hjá ráðherra. Og það besta við það er að þessi maður sem er núna ráðherra er þingmaður Norðvesturkjördæmis, okkar kjördæmis.“
Flatey Reykhólahreppur Ferjan Baldur Samgöngumál Byggðamál Mest lesið Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Pútín sló öll met Erlent Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Erlent Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Innlent Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Innlent Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Erlent Fleiri fréttir Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Tuttugu lögðu ólöglega Brutust inn hjá fyrirtæki Skipuleggur eigin jarðarför Eldur í bíl í Heiðmörk Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Sjá meira