Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Valur Páll Eiríksson skrifar 7. júní 2026 18:09 Eriksen virðist vera í lagi eftir þetta hræðilega atvik. Ulrik Pedersen/NurPhoto via Getty Images Christian Eriksen, leikmaður danska landsliðsins, féll til jarðar og fór í hjartastopp í leik Dana við Úkraínu í Óðinsvéum í Danmörku seinni partinn í dag. Hann gekk í kjölfarið af velli eftir að bjargráður endurræsti hjarta hans.
Eriksen féll til jarðar þegar tæplega 65 mínútur voru liðnar af leiknum. Heyra mátti saumnál detta og algjörri þögn sló á völlinn utan þeirra sem kölluðu á hjálp. Kaldur hrollur fór um áhorfendur í ljósi sögunnar en um er að ræða annað skiptið sem Eriksen fellur til jarðar í leik vegna hjartaáfalls. Leikmenn og starfsfólk, auk neyðaraðila voru fljótt kallaðir til og hlúðu að honum. Leikmenn mynduðu vegg í kringum Eriksen og var fátt annað fyrir þá að gera en að bíða eftir að bjargráður sem græddur hefur verið í Danann myndi endurræsa hjarta hans. Sjónvarpsmyndavélar sýndu ekki hvað gerðist á vellinum en danskir miðlar greina frá því að Eriksen hafi staðið upp og gengið sjálfur af velli eftir að hlúð hafði verið að honum í um tíu mínútur. Uppfært: Danska knattspyrnusambandið hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að Eriksen sé með meðvitund og líði vel miðað við aðstæður. Um er að ræða annað skiptið sem Eriksen hnígur til jarðar vegna hjartaáfalls. Það gerðist í leik Danmerkur og Finnlands á Parken á EM sumarið 2021. Eriksen lést þá á vellinum en var endurlífgaður. Í kjölfarið var hann utan fótboltavallarsins um nokkurra mánaða skeið og græddur var í hann bjargráður. Bjargráðurinn virðist hafa sinnt sínu hlutverki í dag og endurræst hjarta Danans á vellinum. O árbitro terminou o jogo mais cedo depois do episódio com Eriksen 🫂As duas seleções uniram-se num momento bonito no final do encontro ❤️#sporttvportugal #FUTEBOLnaSPORTTV #JogodePreparação #Dinamarca #Ucrânia pic.twitter.com/wfuMNydTKV— sport tv (@sporttvportugal) June 7, 2026 Leikurinn var flautaður af eftir atvikið en Danmörk leiddi 2-1 þegar Eriksen féll til jarðar. Leikmenn beggja liða komu saman á vellinum og sendu hlýja strauma til Eriksens eftir lokaflautið líkt og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði. Leikmenn beggja liða þakka áhorfendum fyrir í kjölfar þess að Eriksen gekk af velli.Bo Amstrup/Ritzau Scanpix via AP Farsæll ferill á enda? Eriksen er 34 ára gamall og var um tíma meðal betri sóknartengiliða í ensku úrvalsdeildinni er hann lék fyrir Tottenham Hotspur. Hann fór þaðan til Inter Milan á Ítalíu og lék leiktíðina 2020-21. Sumarið 2021 fékk hann hjartaáfall í leik Danmerkur við Finnland á EM. Hann var fluttur á spítala og þurfti að gangast undir aðgerð eftir að hann hafði verið endurlífgaður á vellinum á Parken. Í hann var græddur bjargráður en ljóst var að hann myndi ekki spila aftur fyrir Inter þar sem óheimilt er fyrir leikmenn með bjargráð að spila á Ítalíu. Engar reglur eru gegn því á Englandi og Eriksen var ákveðinn í því að koma ferlinum aftur af stað. Hann samdi við Brentford í janúar 2022 og spilaði með liðinu um nokkurra mánaða skeið er hann kom sér aftur af stað eftir pásuna sökum hjartavandamálanna. Hann stóð sig það vel að Manchester United festi kaup á honum sumarið eftir. Eriksen spilaði þá sinn fyrsta leik fyrir danska landsliðið strax í mars 2022 og skoraði eftir að hafa verið aðeins tvær mínútur á vellinum. Hann fór með liðinu bæði á HM 2022 og EM 2024. Eriksen lék við góðan orðstír með United til sumarsins 2025 þegar samningur hans rann út. Hann samdi við Wolfsburg í Þýskalandi og var hluti af Wolfsburgarliði sem féll úr þýsku úrvalsdeildinni eftir 30 ára veru í deildinni nú í vor. Leiða má að því líkur að Eriksen hafi í dag verið að spila sinn síðasta leik á ferlinum. Hann hefur alls spilað 679 leiki fyrir félagslið sín á ferlinum í öllum keppnum og skorað 121 mark. Eriksen var í dag að spila landsleik númer 150 fyrir Danmörku og hann hefur skorað 46 mörk fyrir landsliðið. Hann skoraði fyrsta landsliðsmarkið sitt gegn Íslandi á Laugardalsvelli sumarið 2011 og hefur skorað fjögur af 46 landsliðsmörkum gegn Íslandi. Fréttin hefur verið uppfærð.
Danski boltinn Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjá meira