Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Sindri Sverrisson skrifar 8. júní 2026 13:01 Ögmundur Kristinsson verður í treyju númer 47 í Víkinni. Víkingur Víkingar greindu í dag frá komu markvarðarins Ögmundar Kristinssonar sem gert hefur samning við Íslandsmeistarana sem gildir út árið 2026. Samningur við Ingvar Jónsson, sem glímir við krabbamein, var framlengdur um eitt ár.
Víkingar eru á toppi Bestu deildarinnar í fótbolta með 28 stig eftir 10 leiki. Aron Snær Friðriksson hefur varið mark liðsins í síðustu sex deildarleikjum, eða frá því að Ingvar varð að draga sig í hlé vegna sinna veikinda. Útileikmaðurinn Viktor Örlygur Andrason hefur verið til taks sem mögulegur varamarkvörður að undanförnu en Víkingar fengu undanþágu KSÍ til að semja við Ögmund, þó að félagaskiptaglugginn sé nú lokaður, og mun hann keppa við Aron Snæ um stöðu í liðinu í Bestu deildinni, Mjólkurbikarnum og Evrópuleikjum sumarsins. Ögmundur, sem verður 37 ára síðar í þessum mánuði, hafði fengið sig lausan undan samningi hjá Val. Hann kom til Vals sumarið 2024 eftir að hafa verið í tíu ár í atvinnumennsku erlendis, í Grikklandi, Hollandi, Svíþjóð og Danmörku. Hann var í landsliðshópi Íslands á EM 2016, líkt og Ingvar og Hannes Þór Halldórsson sem reyndar er einnig skráður í Víking en lagði hanskana á hilluna fyrir fjórum árum. „Ögmundur hefur gengið til liðs við Víking til að hjálpa okkur í þeim gríðarlega mikilvægu verkefnum sem félagið er í þar sem stefnt er að vinna allt sem er í boði og fara langt í Evrópu og mun hann veita Aroni Snæ nauðsynlega samkeppni um sæti í byrjunarliðinu. Hann er vandaður drengur og frábær markmaður eins er hann mjög góður í hóp sem er okkur mjög mikilvægt hjá Víkingi,“ segir Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi, á heimasíðu félagsins. Eins og fyrr segir hefur samningur við Ingvar verið framlengdur út árið 2027. „Öll Hamingjan sendir Ingvari og hans fjölskyldu baráttukveðjur og hlökkum sömuleiðis til að sjá hann sem allra fyrst í Hamingjunni,“ segir í tilkynningu Víkings.
Víkingur Reykjavík Besta deild karla Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Sjá meira