„Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Jakob Bjarnar skrifar 8. júní 2026 13:48 Guðni Ágústsson hvetur Þingvallanefnd til að standa í lappirnar og leyfa fólki að koma saman að Þingvöllum og kætast saman. Ekki leggja staðinn í eyði. vísir/vilhelm Guðni Ágústsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, telur fráleitt að menn setji sig upp á móti tónleikahaldi á Þingvöllum en að sama skapi er honum mjög í nöp við að fólk sé að atast í jarðneskum leifum Jónasar Hallgrímssonar. „
Ég sat í átta ár í Þingvallanefnd ásamt Össuri Skarphéðinssyni og Birni Bjarnasyni. Þingvöll varðar okkur öll, þetta er helgasti staður þjóðarinnar; þar var Alþingi stofnað og þar komu hetjurnar saman og gerðu landið að því farsældarríki sem það er. Þar tókum við kristna trú sem hefur nú verið grundvöllur lífs þessarar þjóðar og hamingju,“ segir Guðni í samtali við Vísi. Skemmtanir á Þingvöllum þekkst í þúsund ár Guðni ritar grein í Morgunblaðið í morgun þar sem hann tekur á tveimur álitaefnum og lýsir yfir afgerandi skoðun á þeim báðum. „Ég tel mikilvægt að gefa íslensku fólki, æskunni og öllum Íslendingum einhverja hlutdeild í Þingvöllum. Nú eru 95 prósent sem þangað koma útlendingar, ferðamenn og Íslendingum finnst að þeir eigi ekki heima þar. Þess vegna er mikilvægt að búa til stundir sem við Íslendingar eigum þar saman.“ Guðni klæddur í forláta skykkju að hætti fornmanna. Hann er afdráttarlaust þeirrar skoðunar að bein Jónasar fái að hvíla í friði.vísir/vilhelm Guðni nefnir að Þingvellir séu á heimsminjaskrá og séu heimsfrægur staður þar sem elsta löggjafarþing heims var stofnað. „Og svo er fegurðin. Þarna var miðstöð Íslands, þegar hesturinn var fararskjótinn, þá komu menn þarna saman alls staðar að til að halda þing. Skemmtanir hafa þekkst á Þingvöllum í þúsund ár, æskan hefur glaðst og ég vil að við gefum æskunni tækifæri til að njóta þessa staðar.“ Að sögn Guðna gætu tónleikarnir gefið Þingvallanefnd fjörutíu milljónir króna. Það vill Guðni nýta til að veita grunnskólabörnum tækifæri til að sækja staðinn heim og læra um sögu hans. Látið bein Jónasar í friði Guðni segist jafn ósáttur við það að nú standi til að grafa í legstað Jónasar Hallgrímssonar til að rannsaka beinin. „Þarna er verið að vekja gamlar illdeilur en beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli, þau eru þar ásamt beinum Einars Benediktssonar, sem eru tvö frægustu ljóðskáld okkar, af virðingu fyrir skáldskap þeirra. Þeir voru miklu meira en skáld. Einar var athafnamaður og átti sér hugsjónir í virkjunum og afli fossanna. Jónas var magnaðasti náttúrufræðingur Íslands sem gaf okkur hlutdeild í blómum vallarins. Þá var hann mestur smiður tungunnar og nýyrðasmiður. Ég vil láta bein hans í friði og að menn hætti svona rugli því andi þeirra skálda er frjáls. Steinarnir eru bara minningarsteinar um tvo merka menn. Það skiptir engu hvað er þar undir, það eru bein sem eru að verða að mold,“ segir Guðni. Hann vísar til skáldskapar Jónasar. „Nú er hún Snorrabúð stekkur, og lyngið á Lögbergi helga, blánar af berjum hvert ár, börnum og hröfnum að leik.“ „Allt horfið frá Þingvöllum. Ég vil að Þingvöllur verði aftur og áfram helgasti staður þjóðarinnar og þetta þurfum við að gera. Ekki hafa Þingvöll í eyði.“
Tónleikar á Íslandi Þingvellir Fornminjar Ljóðlist Kirkjugarðar Jarðneskar leifar Jónasar Hallgrímssonar Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Fleiri fréttir Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Sjá meira