Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Birgir Olgeirsson skrifar 9. júní 2026 19:01 Daði Már Kristófersson í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Vísir/Anton Brink Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segist ekki hafa skipt um skoðun á boðuðum bankaskatti þrátt fyrir harða gagnrýni fjármálafyrirtækja á opnum fundi Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu í dag.
Í nýrri skýrslu Intellecon, sem kynnt var á fundinum, segir að skatturinn gæti hækkað kostnað lántaka um tugi þúsunda króna á ári ef kostnaðurinn færist að fullu yfir á viðskiptavini bankanna. Ráðherrann segir brýnasta verkefni stjórnvalda hins vegar að ná tökum á ríkisfjármálum og verðbólgu. Segja bankana þegar bera þunga skattbyrði Í skýrslunni segir að íslensku bankarnir búi nú þegar við meiri sértæka skattbyrði en bankar í nágrannalöndunum. Þar er meðal annars vísað til bankaskatts, fjársýsluskatta, eftirlitsgjalda og bindiskyldu hjá Seðlabankanum. Útfærsla nýja skattsins liggur ekki fyrir en sex milljarðar króna hafa verið nefndir. Samkvæmt útreikningum Intellecon gæti 50 milljóna króna húsnæðislán hækkað um allt að 66 þúsund krónur á ári ef allur kostnaðurinn færist yfir á viðskiptavini bankanna. Í skýrslunni er þó tekið fram að áhrifin geti einnig komið fram með öðrum hætti, til dæmis í minni arðsemi bankanna eða frekari hagræðingu. Daði Már segir ljóst að skattlagning hverfi ekki út í loftið. „Á endanum skiptist öll svona skattlagning á milli eigenda og viðskiptavina, þannig að það er ekki eins og það verði til verðmæti við skattlagningu,“ segir Daði Már. Segir baráttuna við verðbólgu mikilvægasta verkefnið Í glærum Benedikts Gíslasonar, bankastjóra Arion banka, kom fram að íslensku bankarnir greiði hlutfallslega hærri skatta en nokkrir norrænir samanburðarbankar, án þess að arðsemin sé óvenjulega há í norrænum samanburði. Daði Már segir málflutninginn á fundinum ekki breyta afstöðu sinni. „Við stöndum frammi fyrir þeirri áskorun að skila hallalausum fjárlögum. Við höfum lagt okkur fram um að ná eins miklum árangri og mögulegt er með hagræðingaraðgerðum. Að ná hér niður verðbólgu er langsamlega mikilvægasta verkefni mitt,“ segir hann. Ráðherrann bendir jafnframt á að ekki sé allt sem bankarnir telji til íþyngjandi kostnaðar bein skattheimta ríkisins. Bindiskylda þýði til dæmis að bankar þurfi að geyma hluta innlána vaxtalausan hjá Seðlabankanum. Hún sé ákvörðun Seðlabankans og hluti af peningastefnunni. „Viðvarandi verkefni“ Á fundinum sagði Daði Már að til að ná verðbólgu niður þyrfti að taka erfiðar ákvarðanir. Honum var bent á að það nægði ekki að hækka skatta, heldur þyrfti einnig að taka erfiðar ákvarðanir um útgjöld ríkissjóðs. „Þetta er viðvarandi verkefni,“ sagði Daði Már og bætti við að ríkisfjármálin og verðbólgan væru hans fyrsta forgangsverkefni.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fjármálafyrirtæki Skattar, tollar og gjöld Alþingi Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira