Hver er flottasta treyjan á HM? Valur Páll Eiríksson skrifar 12. júní 2026 08:01 Benedikt Bjarkason og Viðar Valsson, verslunarmenn og eigendur Boltamannsins, hafa í nægu að snúast í aðdraganda HM. Vísir/Sigurjón Skiptar skoðanir eru á fótboltatreyjum landanna 48 sem taka þátt á HM í sumar. Þær rjúka út í Boltamanninum í Fellsmúla.
Veislan hófst loks í gær og viðskiptavinir að finna sér réttu treyjuna fyrir komandi mót, hvort sem það var England, Holland, Portúgal, Spánn eða Brasilía. Þeir Viðar Valsson og Benedikt Bjarnason, eigendur og verslunarmenn í Boltamanninum, hafa skoðanir á flottustu treyjum mótsins. „Ég myndi segja spænska varatreyjan engin spurning,“ segir Benedikt sem var sjálfur klæddur í eina af tveimur varatreyjum Mexíkó sem báðar þykja flottar. „Það er treyjan sem ég er í, hún er sú flottasta,“ segir Viðar sem var klæddur í varatreyju Þýskalands. Báðar treyjurnar eiga sameiginlegt að vera frá þýska framleiðandanum Adidas, með gömlu merki framleiðandans en Adidas þykir hafa lukkast sérlega vel til í ár. Ungir viðtskiptavinir voru hins vegar báðir hrifnari af Nike-treyjum. Sigurður Nói Halldórsson sagði brasilísku varatreyjuna flottasta, en hún er merkt Air Jordan og framleidd af Nike. Sigurður styður þó Noreg en ekki Brasilíu á mótinu. Bróðir hans Snorri Sveinn Halldórsson segir varatreyju Frakklands flottasta en mun annað en bróður hans styðja Brasilíu á HM. Þóra Björg Birgisdóttir var í versluninni að leita nýrrar treyju eftir að hafa fengið þýska upp úr hattinum hjá Happatreyjum. „Ég held með Portúgal svo ég verð að kaupa mér nýja,“ segir Þóra sem þykir varatreyja Portúgals flottust. „Fyrir minn mann, Ronaldo.“ Vinkona hennar Erna Ósk Brynjarsdóttir leitaði einnig treyju fyrir fyrsta leik. Hún hallaðist að Englandi og Portúgal. En hún getur ekki fengið sér sömu treyju og Þóra, eða hvað? „Nei, ég verð að finna eitthvað öðruvísi,“ segir Erna og hlær. Umrædd varatreyja Spánar selst hvað best „og Argentína og Brasilía, það er eitthvað sem klikkar aldrei,“ segir eigandinn Viðar að endingu. Fréttina má sjá í spilaranum.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Fleiri fréttir Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira