Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Sindri Sverrisson skrifar 12. júní 2026 13:32 Kelci Bowers og Marcos Senesi höfðu átt erfitt með að njóta þess að vera í sumarfríi því þau vissu að HM-draumurinn gæti ræst. Skjáskot/@_kelci.rose_ Eins manns dauði er annars brauð eins og fylgjendur Kelci Bowers urðu vitni að á Instagram þegar hún sýndi frá símtalinu þess efnis að kærasti hennar, Marco Senesi, hefði verið kallaður inn í HM-hóp Argentínu.
Óhætt er að segja að ofsagleði hafi brotist út á hótelherbergi fótboltaparsins við tíðindin, þar sem þau voru stödd á Ibiza að reyna að slappa af í sumarfríi sínu. Þau höfðu hins vegar átt erfitt með að slaka á frá því að miðvörðurinn Leonardo Balerdi datt út úr argentínska hópnum vegna meiðsla, því þar með var ljóst að Senesi ætti góða möguleika á að fá sæti í HM-hópnum. Þegar síminn hjá Senesi hringdi var Bowers því fljót að kveikja á myndavélinni til að taka upp símtalið og hún sýndi líka viðbrögðin hjá parinu sem hoppaði hreinlega og skríkti af gleði. 🚨☎️ The moment when Marcos Senesi got a call from Lionel Scaloni.What a video. pic.twitter.com/OJZhg1WPn9— All About Argentina 🛎🇦🇷 (@AlbicelesteTalk) June 11, 2026 „Við vorum að koma úr ferðalagi til Miami. Við komum aftur til Ibiza til að slaka aðeins á en allan tímann höfum við átt erfitt með að ná því. Við vitum bæði stöðuna svo við höfum ekki alveg náð að njóta, skiljið þið? Og núna er búið að kalla á Marcos í hópinn! Ertu að grínast? Þetta er það sem við höfum legið á bæn um, hann hefur hugsað um þetta á hverjum degi. Þetta er alveg klikkað,“ sagði Bowers í myndbandinu áður en hún faðmaði sinn mann og fagnaði þegar hann hafði skellt á. Lífið leikur við hinn 29 ára Senesi sem eftir að hafa verið lykilmaður hjá Bournemouth síðustu ár gekk í raðir Tottenham nú í sumar. Hjá Bournemouth kynntist hann hinni 22 ára gömlu Bowers sem var leikmaður kvennaliðs félagsins en er núna án samnings og gæti því mögulega elt Senesi til Tottenham.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Fleiri fréttir Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Sjá meira