Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Árni Sæberg skrifar 12. júní 2026 10:07 Þórarinn Hjartarson í Einni pælingu og Ólöf Skaftadóttir í Komið gott eru meðal þeirra sem helst hafa barmað sér yfir kröfum Fjölmiðlanefndar um skráningu hlaðvarpa. Logi Einarsson virðist nú hafa skorið þau úr snörunni. Vísir Vinna er hafin innan menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins við að breyta lögum um fjölmiðla. Ein helsta fyrirhugaða breytingin er að hlaðvörp verða ekki lengur skráningarskyld sem fjölmiðlar. Þannig virðast hlaðvarparar hafa unnið stríðið við Fjölmiðlanefnd, sem geisað hefur um nokkur misseri.
Hlaðvarparar hafa undanfarið kvartað sáran yfir því að vera krafðir um að skrá hlaðvörp sín sem fjölmiðla, með tilheyrandi boðum og bönnum. Til að mynda hafa stöllurnar í Komið gott vart rætt annað en karp þeirra við Fjölmiðlanefnd, sem heldur utan um fjölmiðlaskrá, undanfarnar vikur og Þórarinn Hjartarson, stjórnandi Einnar pælingar, hefur sagst frekar myndu hætta með hlaðvarpið en að verða við kröfum nefndarinnar um skráningu. Vísir ákvað vegna þessa að senda menningar,- nýsköpunar- og háskólaráðuneyti Loga Einarssonar fyrirspurn og falast eftir afstöðu þess til skráningar hlaðvarpa sem fjölmiðla. Skilgreina fjölmiðlahugtakið betur Í svari ráðuneytisins segir að það hafi á undanförnum mánuðum unnið að breytingum sem séu til þess að fallnar að styrkja íslenska fjölmiðlaumhverfið. Í framhaldi af aðgerðaáætlun um fjölmiðla, sem var kynnt fyrir áramót, hafi meðal annars verið lagt fram frumvarp um stuðning við einkarekna fjölmiðla og í haust verði lagt fram frumvarp um breytingar á lögum um Ríkisútvarpið. Næsta skref sé að endurskoða lög um fjölmiðla, ekki síst með það fyrir augum að styrkja faglega fjölmiðlun og blaðamennsku í landinu. Það verði til að mynda gert með því að skerpa lagalegu skilgreininguna á því hvað telst fjölmiðill og stefnt sé á að kynna lagabreytingar þess efnis á næsta þingvetri. Reglur munu eftir sem áður gilda Nánari útfærsla á fyrirhuguðum breytingum verði kynnt þegar frumvarpið fer í samráð, en útgangspunkturinn sé að hin hefðbundnu hlaðvörp eins og við þekkjum þau í dag verði ekki skráningarskyld. Eftir sem áður muni áfram gilda hinar ýmsu reglur um hlaðvörp líkt og annars konar miðlun á efni, til dæmis um vernd barna, auglýsingar og svo framvegis. Fjölmiðlanefnd feig? Meðal hagræðingatillagna sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur kynnti nýverið var möguleg sameining eða samrekstur Fjölmiðlanefndar með öðrum stofnunum. Samhliða fyrirspurn um hlaðvörp spurði Vísir því út í afdrif Fjölmiðlanefndar. Í svari ráðuneytisins segir að það hafi á undanförnum mánuðum horft til þess að einfalda stjórnsýslu og eftirlit á sviði fjölmiðlunar og fjarskipta, í samræmi við fyrrnefnda aðgerðaáætlun um fjölmiðla. Sú vinna sé hafin í ráðuneytinu en slík einföldun krefjist lagabreytinga og samstarfs milli ráðuneyta. Ýmsar leiðir séu færar í þessum efnum og nokkrar útfærslur til skoðunar, í þeirri endurskoðun sé meðal annars litið til tillagna hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar um sameiningar stofnana. Nánari útfærsla verði kynnt þegar tengd frumvörp fara í samráð, en stefnt sé að því að klára þessa vinnu á kjörtímabilinu.
Hlaðvörp Fjölmiðlar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samfylkingin Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Máttu tæma lónið Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Sjá meira