Veður

„Gegnum­gangandi bongó um helgina“

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Þessir strákar skemmtu sér vel við fossinn í Elliðaárdal í dag.
Þessir strákar skemmtu sér vel við fossinn í Elliðaárdal í dag. Vísir/Vilhelm

Það stefnir í að veðurblíðan haldi áfram að leika við landann um helgina. Ekki nóg með það að sólin haldi áfram að skína á sunnan- og vestanverðu landinu heldur lætur hún einnig sjá sig norðan- og austanlands á morgun.

Það hefur vonandi enginn höfuðborgarbúi farið varhluta af blíðunni sem ríkti í dag á suðvesturhorninu. Hiti fór yfir tuttugu stigin víða á höfuðborgarsvæðinu og hæsti hiti sem mældist í dag mældist í Korpu og nam 21 stigi. Þetta er því annað árið í röð sem hitinn nær 20 stigum í höfuðborginni.

Rúmlega 20 stig mældust bæði í Urriðaholti og á Kjalarnesi. 20,7 stig mældust sömuleiðis á Tálknafirði síðdegis í dag þannig að segja má að sólin hafi miðað lengdargráðuna í dag.

Hrafn Guðmundsson veðurfræðingur á Veðurstofunni segir ekki nóg með það að sólin haldi áfram að skína heldur skíni hún sömuleiðis á norður- og austanverðu landinu á morgun. Súld var yfir Austur- og Norðurlandi í dag. Hitinn náði vart tveggja stafa tölu þar í dag en annað verður á teningnum á morgun.

Hitinn gæti farið upp undir tuttugu stigin og bjart verður um nær allt landið.

„Það er gegnumgangandi bongó um helgina,“ segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×