Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Andri Broddason skrifar 13. júní 2026 09:22 Bandaríkin spiluðu frábæran leik í nótt þar sem Folarin Balogun skoraði tvö mörk. John Dorton/USSF/Getty Images Bandaríkin tóku í nótt á móti Paragvæ í þriðja opnunarleik heimsmeistaramótsins í fótbolta. Heimamennirnir byrjuðu mótið sterkt með góðum sigri. Leikurinn endaði 4-1.
Bandaríkin mættu sterk til leiks og skoruðu fyrsta mark leiksins eftir aðeins átta mínútur. Það var klaufalegt sjálfsmark Damian Bobodilla eftir fyrirgjöf frá Bandaríkjamanninum Weston McKennie. Staðan átti ekki eftir að batna fyrir Paragvæ þegar framherjinn Folarin Balogun skoraði tvö glæsileg mörk undir lok fyrri hálfleiks. Mörk af dýrari gerðinni hjá Mónakó-leikmanninum og Bandaríkin eru yfir í hálfleik 3-0. Paragvæ mætti aðeins sterkari í seinni hálfleik og náði að skora fínt mark þar sem það sást að Paragvæ getur verið vel spilandi lið. Þrátt fyrir það kórónaði Giovanni Reyna sigurinn fyrir Bandaríkin með glæsilegu marki fyrir utan teig sem reyndist lokamark leiksins. Lokatölur 4-1. Leikurinn í nótt var stærsti sigur Bandaríkjanna frá upphafi á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Árið 1930 unnu Bandaríkin Paragvæ og Belgíu 3-0. Það er því sami markamismunur en þetta eru einu leikirnir sem Bandaríkin hafi unnið með þriggja marka mun eða meira. Mauricio Pochettino, þjálfari bandaríska landsliðsins, má vera sáttur við sína menn í liðinu enda spiluðu þeir frábæran leik. Þeir höfðu mikla yfirburði í leiknum og liðið sýndi að það er enginn að fara að valta yfir þá á heimavelli.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Fleiri fréttir Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Sjá meira