Golf

Stóru sleggjurnar ekki af­skrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open

Aron Guðmundsson skrifar
Wyndham Clark hefur verið að spila frábærlega hingað til á U.S. Open en fjögurra högga forysta hans getur verið fljót að hvera.
Wyndham Clark hefur verið að spila frábærlega hingað til á U.S. Open en fjögurra högga forysta hans getur verið fljót að hvera. Vísir/Getty

Þriðji keppnisdagur U.S. Open risamótsins í golfi af fjórum er kominn á fulla ferð og efstu kylfingarnir að fara mæta á teig hver af öðrum Wyndham Clark er með fjögurra högga forystu á toppnum.

Clark, 32 ára gamall Bandaríkjamaður, vann U.S. Open fyrir þremur árum síðan og er nú í forystuhlutverki á mótinu enn á ný. 

Hann hefur verið að spila frábært golf hingað til á risamótinu og er á sjö höggum undir pari fyrir sinn þriðja hring í kvöld. 

Fjögurra högga forysta á toppnum en á eftir honum kemur þéttur pakki sterkra kylfinga á borð við fyrrverandi meistara mótsins Matt Fitzpatrick. 

Staðan getur verið fljót að breytast. Völlurinn gífurlega erfiður og menn fljótir að tapa höggum ef þeir eru ekki á sínum degi. 

Það er þess vegna sem ekki er búið að útiloka nokkra af fremstu kylfingum í heimi á borð við Rory McIlroy og Scottie Scheffler sem eru sjö höggum á eftir Clark á pari eftir tvo hringi.

Bæði McIlroy og Scheffler fara út í sinn hring fljótlega en sýnt er beint frá mótinu á Sýn Sport og óhætt að mæla með áhorfi í kvöld þar sem að línurnar skýrast fyrir lokadag mótsins. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×