Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Aron Guðmundsson skrifar 18. júní 2026 13:48 Gunnlaugur Árni æfir sig hér á Shinnecock vellinum fyrir stóra daginn í dag Vísir/Getty U.S. Open risamótið hefst í dag og stefnir í afar spennandi mót. Gunnlaugur Árni mætir til leiks, fyrstu Íslendinga í sögunni og sterkir kylfingar geta náð merkum áfanga á mótinu. Hvaða áhrif mun síðan erfiður völlur og veðurfar hafa?
U.S. Open verður sýnt í beinni útsendingu á Sýn Sport. Útsending frá fyrsta hring hefst klukkan fjögur í dag. Gunnlaugur Árni átti af stað í sinn hring klukkan 18.20 en tveggja klukkustunda frestun í morgun vegna þoku gæti sett strik í reikninginn. Á morgun verður lengri útsending frá mótinu sem hefst klukkan 12.30 um það leiti sem Gunnlaugur á að hefja sinn annan hring. Opnar nýjan kafla í íslenskri íþróttasögu Aðal sögulínan fyrir okkur Íslendinga er náttúrulega þátttaka Gunnlaugs Árna Sveinssonar á mótinu. Gunnlaugur verður fyrsti Íslendingurinn til þess að taka þátt á þessu risamóti. Gunnlaugur Árni hefur verið að gera frábæra hluti upp á síðkastiðVísir/Getty Gunnlaugur hefur gert það gott í háskólagolfinu og sýndi frábæra takta á lokaúrtökumótinu í síðustu viku. Efstu sextíu kylfingarnir, að meðtöldum jöfnum skorum, komast í gegnum niðurskurð eftir fyrstu tvo keppnisdaga mótsins. Það verður gaman að sjá Gunnlaug spreita sig á móti þeim bestu í bransanum. Hver veit? Kannski nær hann að valda usla. Alslemma og þrítugsafmæli? Scottie Scheffler, efsti maður heimslistans um þessar mundir, getur með sigri á U.S. Open tryggt sér alslemmuna. Það er að verða sjöundi kylfingurinn frá upphafi til þess að hafa unnið öll risamótin í golfi. Scottie Scheffler er besti kylfingur í heimi samkvæmt heimslistanumTerence Lewis/Icon Sportswire via Getty Images Bandaríkjamaðurinn vann tvö risamót á síðasta ári og getur gert næskomandi sunnudag ógleymanlegan fyrir sig. Því ekki er nóg með að sunnudagurinn sé lokadagur U.S. Open heldur verður Scheffler einnig þrítugur þann dag. Sjöundi risatitill Rory? Norður-Írinn Rory McIlroy mun freista þess að vinna enn eitt risamótið um helgina. McIlroy tryggði sér alslemmuna fyrr á árinu með sigri á Masters-mótinu en langt er síðan að hann vann U.S. Open í fyrsta og eina skiptið til þessa, árið 2011. McIlroy er til alls líklegurVísir/Getty Með sigri kemur hann sér í færi á annarri alslemmu sem er fáheyrt í golfheiminum og aðeins Jack Nicklaus og Tiger Woods hafa náð. Ætti þá AÐEINS eftir einn sigur til viðbótar á Opna breska meistaramótinu. Völlurinn og veðrið Það sem allir eru að spá í fyrir fyrsta keppnisdaginn á U.S. Open. Hvernig verður völlurinn og hversu mikil áhrif mun veðrið hafa? Í síðustu tvö skipti sem U.S. Open hefur verið haldið á Shinnecock vellinum hafa kylingar lent í vandræðum. Völlurinn er þekktur fyrir að vera afar erfiður viðureignar. Þá getur veðrið haft mikil áhrif. Dagana fyrir mót hafa kylfingar fengið að kynnast sterkum vindi á svæðinu og spáð er áframhaldandi sterkum hviðum núna í upphafi móts.
Opna bandaríska Tengdar fréttir Íslendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed Gunnlaugur Árni Sveinsson þarf að eiga meira en góð högg til að hitta flatirnar á Shinnecock Hills, þegar hann verður fyrstur Íslendinga til að keppa á Opna bandaríska mótinu í golfi á morgun. Hann býr núna að góðum ráðum frá Patrick Reed sem þekkir það að vinna risamót. 17. júní 2026 15:29 „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Gunnlaugur Árni Sveinsson er klár í stóra sviðið sem U.S. Open risamótið í golfi er. Þetta segir þjálfari hans við LSU háskólann í Bandaríkjunum. Gunnlaugur sé með nálgun atvinnumanns og geti nú sýnt heiminum hversu góður kylfingur hann sé. 17. júní 2026 08:02 „Töluvert öðruvísi golf sem er spilað núna“ Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur fengið góðan undirbúning fyrir Opna bandaríska meistaramótið en segist vera að labba inn í öðruvísi aðstæður en hann er vanur. 16. júní 2026 12:32 Athyglin mun meiri en Gunnlaugur með báða fætur á jörðinni Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson fær nú umtalsvert meiri athygli frá fjölmiðlum og viðskiptatengdum aðilum nú þegar dregur nær fyrsta risamóti hans á ferlinum. Umboðsmaður Gunnlaugs segir hann með báða fætur á jörðinni. 16. júní 2026 07:03 Gunnlaugur æfði óvænt með DeChambeau og Reed Gunnlaugur Árni Sveinsson fær frábæran undirbúning fyrir Opna bandaríska meistaramótið í golfi. Fyrir æfingahringinn með besta kylfingi heims fékk hann óvænt að æfa með Bryson DeChambeu og Patrick Reed. 15. júní 2026 11:29 Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Gunnlaugur Árni Sveinsson fær dýrmæta reynslu í aðdraganda síns fyrsta risamóts á golfferlinum. Hann mun taka æfingarhring með besta kylfingi heims um þessar mundir, Scottie Scheffler. Þjálfari Gunnlaugs hjá LSU segir hann tilbúinn fyrir stóra sviðið. 12. júní 2026 09:30 Á sama sviði og hetjurnar: „Verður ótrúlega skemmtilegt að upplifa“ Gunnlaugur Árni Sveinsson varð á dögunum fyrsti íslenski kylfingurinn til að tryggja sig inn á US Open risamótið í karlaflokki. Kappinn fann á sér á keppnisdeginum að þetta yrði hans dagur, mótlæti braut hann ekki, heldur efldist hann bara við það. Mót með þeim bestu í heimi bíður. 11. júní 2026 10:01 Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor „Þetta er svo ofsalega stórt og ég held að maður átti sig ekki alveg á þessu fyrr en mótið rennur upp eftir rúma viku,“ segir Sveinn Kristinn Ögmundsson, pabbi Gunnlaugs Árna sem fyrstur íslenskra karla vann sig inn á Opna bandaríska mótið í golfi. Foreldrar Gunnlaugs Árna mættu í Bítið á Bylgjunni, eðlilega að rifna úr stolti. 10. júní 2026 09:37 Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Gunnlaugur Árni Sveinsson tryggði sér í fyrradag, fyrstur Íslendinga, sæti á U.S. Open risamótinu í golfi í karlaflokki eftir bráðabana á úrtökumóti í Ohio í Bandaríkjunum. Risastór tíðindi sem koma þó ekki einum helsta golfsérfræðingi landsins á óvart. Þetta sé ekki endastöð hjá Gunnlaugi, bara byrjunin. 10. júní 2026 07:30 Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Enski boltinn Conor McGregor segist vera sá besti í sögunni og ætlar að sanna það Sport Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði Fótbolti Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Fótbolti Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Íslenski boltinn Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Fleiri fréttir Gunnlaugur Árni vann Arnold Palmer-bikarinn Tveir íslenskir kylfingar í efstu tíu sætunum Bjargaði fugli úr tjörn í miðjum golfhring Fá að skoða sjúkraskrár Tigers Woods Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa Hvorki Haraldur né Gunnlaugur fara á Opna breska Víkingaróður Norðmanna kominn inn í golfið líka Sæti á risamóti í boði hjá Haraldi og Gunnlaugi Mickelson sýndi eiginkonu keppinautar nektarmynd af sér Haraldur Franklín nálgast Opna breska Tiger kom fram opinberlega í fyrsta sinn frá handtökunni frægu „Er mörgum árum á eftir þeim og einn daginn verð ég í þeirra sporum“ PGA kynnir nýtt keppnisfyrirkomulag Ein vinsælasta golf YouTube-stjarna heims í Vestmannaeyjum Kom pabba sínum algjörlega á óvart á átjándu holunni á US Open Bauluðu á verðandi US Open meistara Wyndham Clark er sigurvegari U.S. Open Guðrún Brá og Birgir Björn Íslandsmeistarar í holukeppni Sigurinn blasir við Clark en Scheffler lætur sig dreyma Þriggja holu bráðabana þurfti í einvígi Perlu og Elsu Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Gunnlaugur þurfti að slá yfir hús og fullt af fólki til að ná fugli Perla Sól skiptir um skóla og er boðin velkomin í fenið á Flórída Fékk tveggja högga refsingu fyrir reiðiskast á US Open Clark í sérflokki en þarf að byrja snemma eins og Gunnlaugur Árni Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Sjá meira
Íslendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed Gunnlaugur Árni Sveinsson þarf að eiga meira en góð högg til að hitta flatirnar á Shinnecock Hills, þegar hann verður fyrstur Íslendinga til að keppa á Opna bandaríska mótinu í golfi á morgun. Hann býr núna að góðum ráðum frá Patrick Reed sem þekkir það að vinna risamót. 17. júní 2026 15:29
„Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Gunnlaugur Árni Sveinsson er klár í stóra sviðið sem U.S. Open risamótið í golfi er. Þetta segir þjálfari hans við LSU háskólann í Bandaríkjunum. Gunnlaugur sé með nálgun atvinnumanns og geti nú sýnt heiminum hversu góður kylfingur hann sé. 17. júní 2026 08:02
„Töluvert öðruvísi golf sem er spilað núna“ Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur fengið góðan undirbúning fyrir Opna bandaríska meistaramótið en segist vera að labba inn í öðruvísi aðstæður en hann er vanur. 16. júní 2026 12:32
Athyglin mun meiri en Gunnlaugur með báða fætur á jörðinni Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson fær nú umtalsvert meiri athygli frá fjölmiðlum og viðskiptatengdum aðilum nú þegar dregur nær fyrsta risamóti hans á ferlinum. Umboðsmaður Gunnlaugs segir hann með báða fætur á jörðinni. 16. júní 2026 07:03
Gunnlaugur æfði óvænt með DeChambeau og Reed Gunnlaugur Árni Sveinsson fær frábæran undirbúning fyrir Opna bandaríska meistaramótið í golfi. Fyrir æfingahringinn með besta kylfingi heims fékk hann óvænt að æfa með Bryson DeChambeu og Patrick Reed. 15. júní 2026 11:29
Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Gunnlaugur Árni Sveinsson fær dýrmæta reynslu í aðdraganda síns fyrsta risamóts á golfferlinum. Hann mun taka æfingarhring með besta kylfingi heims um þessar mundir, Scottie Scheffler. Þjálfari Gunnlaugs hjá LSU segir hann tilbúinn fyrir stóra sviðið. 12. júní 2026 09:30
Á sama sviði og hetjurnar: „Verður ótrúlega skemmtilegt að upplifa“ Gunnlaugur Árni Sveinsson varð á dögunum fyrsti íslenski kylfingurinn til að tryggja sig inn á US Open risamótið í karlaflokki. Kappinn fann á sér á keppnisdeginum að þetta yrði hans dagur, mótlæti braut hann ekki, heldur efldist hann bara við það. Mót með þeim bestu í heimi bíður. 11. júní 2026 10:01
Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor „Þetta er svo ofsalega stórt og ég held að maður átti sig ekki alveg á þessu fyrr en mótið rennur upp eftir rúma viku,“ segir Sveinn Kristinn Ögmundsson, pabbi Gunnlaugs Árna sem fyrstur íslenskra karla vann sig inn á Opna bandaríska mótið í golfi. Foreldrar Gunnlaugs Árna mættu í Bítið á Bylgjunni, eðlilega að rifna úr stolti. 10. júní 2026 09:37
Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Gunnlaugur Árni Sveinsson tryggði sér í fyrradag, fyrstur Íslendinga, sæti á U.S. Open risamótinu í golfi í karlaflokki eftir bráðabana á úrtökumóti í Ohio í Bandaríkjunum. Risastór tíðindi sem koma þó ekki einum helsta golfsérfræðingi landsins á óvart. Þetta sé ekki endastöð hjá Gunnlaugi, bara byrjunin. 10. júní 2026 07:30