„Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Jakob Bjarnar skrifar 22. júní 2026 12:01 Elísabet er sannfærð um að blóðgjöf, sem hún þáði í kjölfar fæðingar, hafi orðið til þess að hún þróaði með sér sjálfsofnæmi sem næstum varð henni að aldurtila. aðsend Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur segist hafa fengið djúpstæðan áhuga og ástríðu fyrir heilsu og næringu eftir að hafa sjálf misst heilsuna. Elísabet telur blóðgjöf, sem hún þurfti að þiggja, hafa orsakað alvarleg veikindi.
Elísabet er gestur í nýjasta hlaðvarpsþætti Sölva Tryggvasonar. Hún segir samfélagið oft og tíðum of fast í skyndilausnum og að athyglin sé öll á birtingarmynd vandamála en ekki á orsökum vandans, þar sem lækninguna sé að finna: „Ég átti mér draum þegar ég var barn. Ég ólst upp á Vopnafirði og man vel eftir því þegar ég var inni í eldhúsi með ömmu minni að bardúsa og hún fylgdist vel með öllu sem kom frá Matvælastofnun. Þá man ég að ég ákvað að mig langaði að gera eitthvað tengt mat þegar ég yrði stór. Hvort sem það yrði að vera kokkur eða næringarfræðingur.“ Fór að vekjast alvarlega eftir blóðgjöf Elísabet segir að sér hafi ekki gengið vel í skóla og hún sé mjög líklega með ADHD sem var ekki greint. „Ég fór að trúa því að þetta væri ekki eitthvað sem væri mögulegt fyrir mig. En svo gerist lífið. Ég flutti til Reykjavíkur og fór þar í kvöldskóla til að klára stúdentspróf og kynntist manni sem ég svo giftist og eignaðist tvö börn með.“ En einn góðan veðurdag, eins og Elísabet orðar það, tapar hún heilsunni og þá hófst vegferð sem stendur enn. „Ég átti fyrirtæki með vinkonu minni og það var mikið álag á okkur. Ég fann að eftir fæðinguna hjá mér gerðist eitthvað í líkamanum. Fæðingin sjálf gekk vel, en ég var samt þreytt og það var ákveðið að ég væri líklega með járnskort og þyrfti því að fá blóð. Ég man að þegar kom að blóðgjöfinni sagði bæði líkaminn á mér og innsæið að ég ætti ekki að fá þetta blóð og ég grét allan tímann á meðan það var verið að dæla blóðinu inn í mig. Eftir þetta byrjaði ég að veikjast alvarlega og þau veikindi tóku næstum því líf mitt.” Var nær dauða en lífi Í kjölfarið þróaði Elísabet með sér sjálfsofnæmi og endaði með lömunareinkenni og þurfti bæði að vera í öndunarvél og hjólastól. „Alltaf þegar ég fer til baka í þessi veikindi mín tengi ég upprunann á þeim við þessa blóðgjöf og fyrrverandi maðurinn minn er á sömu skoðun. Strax eftir blóðgjöfina breyttist ástandið á mér og hann þurfti að vekja mig um nætur svo að ég gæti gefið dóttur okkar mjólk. Ástandið versnaði svo bara og upphaflega héldu læknarnir að þetta væri bara vöðvabólga en svo ágerðust verkirnir og ég varð bara verri og verri.“ Elísabet segist muna til þess að hún hafi ítrekað spurt hvort það ætti að vera svona sárt að vera með vöðvabólgu. „Svo byrjaði ég að finna lömunareinkenni í líkamanum. Ég vildi samt ekkert láta hafa fyrir mér og gerði lítið úr þessu. En þegar ég var hætt að geta kyngt fór ég loksins á heilsugæslustöð og þaðan var ég send á Bráðamóttökuna og fékk ekki að fara heim í átta mánuði. Það kemur þá í ljós að ég var komin með sjálfsofnæmissjúkdóm þar sem ég ræðst á mínar eigin taugafrumur. Þetta ferli var svo upphafið að langri baráttu sem endaði með bataferli sem tók mörg ár. Þannig að það má segja að það sé 100 prósent þannig í mínu tilviki að ég fékk djúpan áhuga á heilsu og næringarfræði af því að ég þurfti að laga mína eigin heilsu.” Hefur tjáð sig um sumt sem ekki má segja upphátt Elísabet hefur vakið athygli fyrir að tjá sig stundum um hluti sem aðrir í hennar stétt tjá sig ekki mikið um, enda sumt af því ekki vinsælt innan kerfisins: „Við erum með þungt batterí og kerfi sem tekur langan tíma að breyta. Stundum verður þetta líka klíkukennt og fólk er hrætt við að segja það sem það er að hugsa. Stundum er best að segja sem minnst um ákveðna hluti og ég hef komist að því sjálf. Ég hef verið elt og ég hef verið áminnt og alls konar bara fyrir það eitt að segja hluti opinberlega.“ Elísabet segir að veikindin hafi orðið til þess að hún hóf að nema næringarfræði.aðsend En Elísabet segist hafa hag manneskjunnar fyrir framan sig í huga og hún muni ekki hætta því. „Þó að ég sé næringarfræðingur þá spyr ég um áföll og streitu og aðra þætti í sögu fólks sem útskýra oft það sem er að og þar er lausnina að finna. Ef ákveðnir hlutir hjálpa fólki þá finnst mér það vera skylda mín að nota þekkingu mína til að aðstoða á þann máta. Ég hef fengið til mín fólk sem er með vandamál í lifur vegna þess að það tekur of mikið af lyfjum sem það þarf jafnvel ekki á að halda, en enginn segir neitt. Ég hvet fólk til að finna sína eigin leið í því að ná aftur heilsu, sama hvernig sú leið lítur út.” Hægt er að nálgast viðtalið við Elísabetu á solvitryggva.is
Heilsa Podcast með Sölva Tryggva Mest lesið Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Lífið Sonur Cindy Crawford er látinn Lífið Sjóðurinn tómur Lífið Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Lífið Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Lífið 50+: Ósjálfráða vinahreinsunin eftir fimmtugt Áskorun Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Tónlist Fegurðardrottning drepin eða einhver myrtur á hjólhýsasvæðinu Áskorun Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Lífið Sheeran bað aðdáendur afsökunar Tónlist Fleiri fréttir Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Sjá meira