Harpa verður fulltrúi Íslands á heimsmeistaramóti nuddara Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. júní 2026 19:30 Harpa hefur um árabil verið einn vinsælasti íþróttanuddari landsins. Íslenskur nuddari sem er á leið á heimsmeistaramót nuddara í Kaupmannahöfn segist hafa ákveðið í bríaríi að taka þátt í keppninni, hún segist þó full af keppnisskapi og ætlar að vera landi og þjóð til sóma.
Það er klíníski íþróttanuddarinn Harpa Finnsdóttir sem verður fulltrúi Íslands á heimsmeistaramóti nuddara sem haldið er af alþjóðasamtökum nuddara, en hvernig í ósköpunum kom það til? Vissirðu eitthvað um þetta mót fyrir? „Ekki neitt. Ég bara svona: Ah, ég geri þetta bara. Pínu hvatvís. Æi ég veit það ekki, ef ég get keppt í einhverju, þá er það í íþróttanuddi, ég vinn við þetta á hverjum einasta degi,“ segir Harpa. Harpa hefur um árabil verið einn fremsti íþróttanuddari Íslands, sinnt íþróttamönnum vítt og breitt um samfélagið, meðal annars kvennaliði FH í fótbolta. Hún þurfti að senda inn sérstakt umsóknarmyndband til að eiga möguleika á þátttöku, en komist hún áfram á mótinu mun hún keppa við nuddara í öðrum flokkum, þeim sem sinna slökunarnuddi eða Thai nuddi svo eitthvað sé nefnt. Sex dómarar taka Hörpu út í keppninni. „Þeir dæma um leið og ég stíg inn í salinn, er ég brosandi, í hvernig fötum er ég, hvernig er bekkurinn, er ég að gera þetta professional, þeir dæma allt.“ Þannig fékk Harpa lista yfir 67 hluti sem hún ætti að huga að fyrir mótið. Og sá sem fær nuddið, hann gefur skýrslu. Ertu stressuð? „Já, ég viðurkenni það, komnir pínu brauðfætur, en þetta er líka mikil spenna, ég veit ekkert hvað ég er að fara út í.“ En hvernig undirbýr maður sig fyrir svona mót? „Bara nudda. Mentally, þetta er aðallega hérna, þetta er þessi gaur, hann þarf að vera svolítið geggjaður.“ Og Harpa tók ekki annað í mál en að fá að spreyta sig á undirrituðum. Sjón er sögu ríkari.
Heilsa Íslendingar erlendis Danmörk Mest lesið Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Fleiri fréttir „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Sjá meira