Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Kjartan Kjartansson skrifar 24. júní 2026 11:01 Kona reynir að kæla sig niður með blævæng og sólhlíf á meðan hún bíður eftir að berja páfa augum á Péturstorgi í Róm í morgun. AP/Alessandra Tarantino Áfram er varað við lífshættulegri hitabylgju í Evrópu, allt frá London í vestri til Mílanó í austri, í dag. Líkur eru á að nýtt hitamet fyrir júní verði sett á Englandi.
Rauð hitaviðvörun sem gefin hefur verið út fyrir stóran hluta Mið- og Suður-Englands og Wales í dag er aðeins önnur slík viðvörunin sem bresk yfirvöld hafa nokkru sinni gefið út. Sú fyrsta var í júlí 2022 þegar hiti fór yfir fjörutíu gráður. Breska veðurstofan spáir allt að 38 stiga hita á sunnanverðu Englandi. Skólum hefur sums staðar verið lokað vegna þess að lestarferðum hefur verið aflýst til þess að draga úr óþarfa ferðalögum á meðan viðvörunin er í gildi, að sögn AP-fréttastofunnar. Þá hefur Network Rail, fyrirtækið sem rekur breska lestarkerfið, varað við töfum í dag. Hraði lesta er takmarkaður vegna hitans sem getur meðal annars sveigt teina og haft áhrif á rafmagnsvíra. Hitamælir segir 43 gráður í borginni Rennes í vestanverðu Frakklandi á mánudag. Meginland Evrópu hefur verið þjakað af skæðri hitabylgju undanfarna daga.AP/Jeremias Gonzalez Dagshitamet var slegið í Frakklandi í gær þegar meðalhiti á þrjátíu veðurathuganastöðvum víðsvegar um landið náði 29,8 gráðum. Opnunartími Eiffel-turnsins og Louvre-safnsins í París var skertur vegna hitans. Áfram er spáð miklum hita í Frakklandi í dag. Tugir milljóna manna búa við rauðar hitaviðvaranir í Frakklandi, á Spáni og á Ítalíu í dag. Á Ítalíu hafa rauðar viðvaranir verið gefnar út í sextán borgum, þar á meðal í Róm, Mílanó, Flórens og Tórínó. Hitinn er talinn geta náð allt að 41 gráðu í Flórens og 38 gráðum í Mílanó.
Loftslagsmál Veður Frakkland Ítalía Bretland Náttúruhamfarir Hitabylgja í Evrópu í júní 2026 Tengdar fréttir Eins og að vera í bakaraofni í hitabylgjunni: „Raunveruleg hætta á að fólk geti fengið hitaslag“ Nýliðin nótt var sú heitasta frá upphafi mælinga í Frakklandi og Lundúnum er lýst sem bakaraofni. Hitabylgjan í Evrópu hefur reynst banvæn en veðurfræðingur sem talar frá Róm segir að miðja hitahvelfingarinnar sé að færast norður yfir Bretlandseyjar. 23. júní 2026 12:44 Rauðar viðvaranir í Bretlandi vegna hita Veðurstofan í Bretlandi telur líklegt að í dag verði heitasti dagur júnímánaðar frá upphafi mælinga þar í landi. Spáð er því að hitinn fari yfir 35 stig. 23. júní 2026 07:55 Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Mikil hitabylgja geisar í Evrópu og eru rauðar veðurviðvaranir í gildi á stórum svæðum vegna hita. Áhrif hitabylgjunnar hafa verið gríðarlega mikil í Frakklandi. Í suðausturhluta landsins fundust tvö börn, tveggja og fjögurra ára, látin í bifreið í dag. Hitastig á svæðinu mældist 39 gráður á hádegi. 22. júní 2026 21:36 Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Skuldar ekkert Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fleiri fréttir Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Sjá meira
Eins og að vera í bakaraofni í hitabylgjunni: „Raunveruleg hætta á að fólk geti fengið hitaslag“ Nýliðin nótt var sú heitasta frá upphafi mælinga í Frakklandi og Lundúnum er lýst sem bakaraofni. Hitabylgjan í Evrópu hefur reynst banvæn en veðurfræðingur sem talar frá Róm segir að miðja hitahvelfingarinnar sé að færast norður yfir Bretlandseyjar. 23. júní 2026 12:44
Rauðar viðvaranir í Bretlandi vegna hita Veðurstofan í Bretlandi telur líklegt að í dag verði heitasti dagur júnímánaðar frá upphafi mælinga þar í landi. Spáð er því að hitinn fari yfir 35 stig. 23. júní 2026 07:55
Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Mikil hitabylgja geisar í Evrópu og eru rauðar veðurviðvaranir í gildi á stórum svæðum vegna hita. Áhrif hitabylgjunnar hafa verið gríðarlega mikil í Frakklandi. Í suðausturhluta landsins fundust tvö börn, tveggja og fjögurra ára, látin í bifreið í dag. Hitastig á svæðinu mældist 39 gráður á hádegi. 22. júní 2026 21:36