Bruno um Ronaldo: „Mikilvægt fyrir okkur að hann skoraði“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. júní 2026 16:32 Cristiano Ronaldo þakkar Bruno Fernandes fyrir stoðsendinguna í sigri Portúgala í gær. Getty/Luciano Bisbal Bruno Fernandes var létt yfir því að liðsfélagi hans í portúgalska landsliðinu, Cristiano Ronaldo, hafi opnað markareikning sinn með tveimur mörkum á heimsmeistaramótinu í gær.
Miðjumaður Manchester United lagði upp þriðja mark Portúgals fyrir Ronaldo í 5-0 sigri á Úsbekistan. „Það er alltaf sérstakt að gefa stoðsendingu með landsliðinu, sérstaklega á heimsmeistaramótinu, sem er einstakt mót,“ sagði Fernandes. Portúgal og Ronaldo höfðu verið gagnrýnd í fjölmiðlum fyrir slaka frammistöðu í fyrsta leik sínum, markalausu jafntefli gegn Austur-Kongó. Bruno 🤝 CR7 pic.twitter.com/T6832iq0Dt— Manchester United (@ManUtd) June 24, 2026 Hinn 41 árs gamli Ronaldo svaraði með því að skora fyrsta markið á sjöttu mínútu áður en hann bætti við öðru marki sínu fyrir hálfleik. Með því varð hann fyrsti maðurinn í sögunni til að skora á sex mismunandi heimsmeistaramótum. „Það var mikilvægt fyrir fyrirliðann okkar að skora,“ sagði Bruno Fernandes um Ronaldo. „Það var mikilvægt fyrir okkur að hann skyldi skora. Hann er okkar aðalmaður í sókninni. Við erum mjög ánægðir fyrir hans hönd,“ sagði Bruno. Fernandes á að baki frábært tímabil með Manchester United, þar sem hann sló met ensku úrvalsdeildarinnar yfir flestar stoðsendingar (21) á einu tímabili og hlaut verðlaun sem besti leikmaður tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni. „Það sem skiptir máli er að Portúgal skori, hvort sem það er ég eða ekki,“ sagði Bruno. „Okkur tókst að skora mörg mörk og við erum ánægð með það. Ég er hér til að leggja upp færi fyrir liðsfélaga mína í framlínunni – það er hluti af mínum leik – óháð því hvort ég skora eða ekki. Ég trúi því að mitt augnablik muni koma og að það verði á tímapunkti þegar þess er raunverulega þörf,“ sagði Bruno. Portúgal mætir næst Kólumbíu á laugardag í baráttu um efsta sætið í K-riðli. Kólumbía hefur þegar tryggt sér sæti í útsláttarkeppni heimsmeistaramótsins með tveimur sigrum í tveimur leikjum. 🚨🇵🇹 Bruno Fernandes vs Uzbekistan 🇺🇿• 90 minutes played• 1 assist• 3 chances created• 2 big chances created• 9 passes into the final third• 1 shot on target• 1 shot blockedClassic Bruno performance — always pulling the strings in attack 🔥🇵🇹No matter the… pic.twitter.com/i7OrZesY1s— Manchester United Forever (@UtdForever7) June 23, 2026
HM 2022 í Katar Tengdar fréttir Maður dagsins á HM: „Ég er mættur aftur“ Cristiano Ronaldo skráði sig á spjöld sögunnar í gær þegar hann varð fyrsti leikmaðurinn til að skora á sex mismunandi heimsmeistaramótum, en hann skoraði þá tvö mörk í 5-0 sigri Portúgals á Úsbekistan. 24. júní 2026 10:02 Pólitískar skoðanir ráða miklu um hvort fólk elskar Messi eða Ronaldo Hvor er betri, Lionel Messi eða Cristiano Ronaldo? Þetta er spurning sem er spurð hvað eftir annað innan fótboltafjölskyldunnar og fótboltaáhugafólk er alls ekki sammála um. 24. júní 2026 08:32 Ronaldo fyrstur til að skora á sex heimsmeistaramótum Cristiano Ronaldo skráði sig í sögubækur heimsmeistaramótsins í fótbolta þegar hann kom Portúgal yfir gegn Úsbekistan í leik sem nú stendur yfir í K-riðli. Hann er fyrsti leikmaðurinn í sögu HM sem skorar á sex mótum. 23. júní 2026 17:51 Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Eftir vonbrigðin gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó sýndu Cristiano Ronaldo og félagar hans í portúgalska landsliðinu styrk sinn þegar þeir rúlluðu yfir Úsbekistan, 5-0, í K-riðli heimsmeistaramótsins. Ronaldo skoraði tvívegis og hefur því skorað á sex heimsmeistaramótum á ferlinum. 23. júní 2026 19:05 Engin skylda að gefa á Cristiano Ronaldo Francisco Conceicao, leikmaður Portúgals, vísaði þeim orðrómi til föðurhúsanna að liðið finni fyrir pressu til að leita stöðugt að Cristiano Ronaldo á vellinum á þessu heimsmeistaramóti í fótbolta. 23. júní 2026 13:03 Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Sjá meira
Maður dagsins á HM: „Ég er mættur aftur“ Cristiano Ronaldo skráði sig á spjöld sögunnar í gær þegar hann varð fyrsti leikmaðurinn til að skora á sex mismunandi heimsmeistaramótum, en hann skoraði þá tvö mörk í 5-0 sigri Portúgals á Úsbekistan. 24. júní 2026 10:02
Pólitískar skoðanir ráða miklu um hvort fólk elskar Messi eða Ronaldo Hvor er betri, Lionel Messi eða Cristiano Ronaldo? Þetta er spurning sem er spurð hvað eftir annað innan fótboltafjölskyldunnar og fótboltaáhugafólk er alls ekki sammála um. 24. júní 2026 08:32
Ronaldo fyrstur til að skora á sex heimsmeistaramótum Cristiano Ronaldo skráði sig í sögubækur heimsmeistaramótsins í fótbolta þegar hann kom Portúgal yfir gegn Úsbekistan í leik sem nú stendur yfir í K-riðli. Hann er fyrsti leikmaðurinn í sögu HM sem skorar á sex mótum. 23. júní 2026 17:51
Ronaldo í sögubækurnar í stórsigri Portúgals Eftir vonbrigðin gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó sýndu Cristiano Ronaldo og félagar hans í portúgalska landsliðinu styrk sinn þegar þeir rúlluðu yfir Úsbekistan, 5-0, í K-riðli heimsmeistaramótsins. Ronaldo skoraði tvívegis og hefur því skorað á sex heimsmeistaramótum á ferlinum. 23. júní 2026 19:05
Engin skylda að gefa á Cristiano Ronaldo Francisco Conceicao, leikmaður Portúgals, vísaði þeim orðrómi til föðurhúsanna að liðið finni fyrir pressu til að leita stöðugt að Cristiano Ronaldo á vellinum á þessu heimsmeistaramóti í fótbolta. 23. júní 2026 13:03