Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 27. júní 2026 12:15 Sigrún Daníelsdóttir, verkefnastjóri hjá embætti landlæknis segir flest hafa þróast til verri vegar. Vísir/Bjarni Ungu fólki sem metur andlega heilsu sína góða hefur fækkað á síðastliðnum áratug á Íslandi og þá hefur streita og einmanaleiki aukist á meðal landsmanna.
Í nýjum Talnabrunni embætti landlæknis er farið yfir hvernig líðan landsmanna hefur þróast frá árinu 2016. Þannig sýnir könnun sem gerð var að um sjötíu prósent telja andlega heilsu sína góða. Hlutfall kvenna sem telja hana vera það hefur hins vegar lækkað undanfarinn áratug á meðan hlutfallið hefur ekki breyst á meðal karla. „Svona heilt yfir þá eru flestar mælingarnar ýmist að standa í stað eða þá að þær eru að þróast til verri vegar, sem er auðvitað ekki það sem við myndum vilja sjá. Þar erum við til dæmis að það hefur orðið aukning á upplifun fullorðinna af streitu í daglegu lífi og þá kannski einkum meðal kvenna. Við erum að sjá lítils háttar en samt eitthvað sem mælist hjá okkur, aukningu á einmanaleika. Hamingja hefur dalað, það sjáum við alveg jafnt og þétt yfir þetta tímabil,“ segir Sigrún Daníelsdóttir, verkefnastjóri geðræktar hjá embætti landlæknis. Ungu fólki líður verr Þá fækkaði mest í hópi þeirra sem meta andlega heilsu sína góða í hópi ungs fólks á aldrinum 18–24 ára. „Við höfum séð það alveg reglubundið í gegnum okkar mælingar að unga fólkið kemur jafnan verr út heldur en eldra fólk á flestu af því sem við erum að skoða hvað varðar andlega líðan. Þarna sjáum við til dæmis að það verður lækkun um tíu prósentustig á andlegri heilsu hjá yngsta hópnum, yfir þetta á tímabilinu 18 til 25 ára. Það er vissulega eitthvað sem má hafa áhyggjur af og sömuleiðis þá erum við að sjá þarna mikinn mun eftir því hvernig fólk upplifir fjárhagsstöðu sína. Það er auðvitað mikið áhyggjuefni.“ Hún segir erfitt að segja til um ástæðurnar fyrir þessari breytingu á andlegri heilsu ungs fólks en þróunina í þessa átt megi rekja aftur til síðustu aldamóta. Frá þeim tíma hafi orðið breytingar á lífsmynstri ungs fólks. Stafræn samskipti hafi aukist, frítími sé minni vegna þátttöku í skipulögðum tómstundum, breytingar hafi orðið á svefni ungmenna en fleiri eiga erfitt með að sofna á kvöldin en áður og þá hafi áhyggjur af þróun heimsmála og fleiru aukist. „Það er auðvitað ýmislegt sem getur valdið áhyggjum hjá ungu fólki í dag og svo náttúrulega á móti kemur þessi seigluþáttur. Okkur hefur kannski ekki tekist að byggja upp nægilega seiglu og þrautseigju meðal unga fólksins okkar í dag til þess að takast á við þennan flókna veruleika sem blasir við því.“ Þannig sé margt í dag sem geti valdið streitu. „Maður er með heiminn einhvern veginn í vasanum, liggur við, í gegnum snjalltækin okkar. Það er svo auðvelt að fylgjast með öllu í rauntíma og svo margt sem getur í rauninni valdið áhyggjum og óróleikatilfinningu.“
Svefn Geðheilbrigði Embætti landlæknis Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Sjá meira