„Harka, hugrekki og massífir“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 28. júní 2026 16:30 Viktor Karl Einarsson heilsar Viktori Örlygi Andrasyni, fyrirliða Víkings, fyrir leik. vísir/guðmundur „Tilfinningin er eins góð og hún getur verið. Þetta var bara ótrúlega góður sigur. Grunngildin voru í lagi, við mættum massífir og planið gekk upp á tíu,“ sagði Viktor Karl Einarsson, fyrirliði Breiðabliks, eftir 3-0 sigur á heimavelli í undanúrslitum Mjólkurbikarsins gegn Víkingum.
Liðin mættust á sama stað á fimmtudaginn var þar sem Víkingar unnu 1-4. Aðspurður hvað Blikar lærðu af þeim leik fyrir þennan, þá hafði Viktor Karl þetta að segja. „Grunngildin, að vera ótrúlega massífir og minna okkur svolítið á fyrir hvað við stöndum. Það er að vera hugrakkir í pressu og að vera ótrúlega erfiðir heim að sækja og við fórum bara aftur í grunnin, það sem við viljum standa fyrir. Harka, hugrekki og massífir, það var bara til staðar í dag og þá erum við mjög erfiðir við að eiga.“ Leikurinn í dag var stál í stál lengi vel, en fyrsta markið kom ekki fyrr en á 77. mínútu, þegar Gabríel Snær Hallsson skoraði eftir klaufamistök miðvarða Víkings. Viktor Karl segir það mark hafa gefið góða tilfinningu og mátti greina aukið sjálfstraust inn í Blika liðinu í kjölfarið fyrir lokakaflann. „Það kom ansi góð tilfinning um líkamann þegar maður sá hann í netinu þarna. Aron var náttúrulega búinn að verja hann þarna rétt áður hrikalega vel, þannig að það var virkilega sætt að sjá hann í netinu.“ Breiðablik fór síðast í úrslitaleik bikarsins árið 2018, þar sem liðið tapaði gegn Stjörnunni. Viktor Karl segir liðið ætla sér bikarinn verandi komnir í úrslitin. Hann vill þó að liðið taki með sér þau grunngildi sem voru í hávegum höfð í leiknum í dag inn í Bestu deildina. „Þú verður að setja markmiðið á titilinn þegar þú ert kominn í úrslitaleik. Það eru bara tvö lið með sama markmið. Við förum klárlega brattir inn í það. Þangað til er það bara deildin og við þurfum að vera með sama viðhorf í deildinni, grunngildin verða að vera í lagi og þá erum við ansi erfiðir við að eiga. Markmiði núna er full einbeiting á deildina og svo verðum við klárir í september.“
Mjólkurbikar karla Breiðablik Víkingur Reykjavík Mest lesið Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn Íslenski boltinn Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Fótbolti Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Golf Mourinho hringdi í Ferguson og grét Enski boltinn Mátti ekki koma á HM en fær sviðsljósið annað kvöld Fótbolti Kominn með samning við risafyrirtæki og fær eigin pílur Sport Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Uppgjörið: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið KR-ingar geta ógnað ótrúlegu afreki Skagamanna í kvöld „Höfum trú á að við getum farið inn í alla leiki til þess að vinna“ „Búnir að vera í basli en þetta er vonandi byrjun á betri spilamennsku“ Hallgrímur segir stöðuna erfiða: „Þetta er þungt núna“ Uppgjörið: Breiðablik - Valur 1-3 | Langþráður sigur Brazell „Vantar bara herslumuninn og sá munur kom í dag“ „Missir ástina á fótbolta við að taka þátt í svona bulli“ Fannst ÍBV brjóta fyrir vítadóminn „Jákvætt að tengja saman tvo sigra“ „Ákvörðun dómarans verðskuldar ekki komment“ Uppgjörið: KA - FH 0-1 | Úr fallsæti og auka á þjáningar norðanmanna Uppgjörið: Víkingur - ÍBV 2-2 | Annað misstig meistaranna Uppgjörið: ÍA - Þór 2-0 | Þrír í röð án taps hjá ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 1-0 | Stjarnan heldur áfram að þoka sér upp töfluna Árni gekk í það heilaga og fékk frí Von Völsungs lifir góðu lífi Hefur enn trú á sjálfum sér: „Finnst fólkið vera á bakvið okkur“ Framherjaleit Breiðabliks lokið Þrótti mistókst að fara á toppinn Erlingur Agnars í FH Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Sjá meira