Víkingaróður Norðmanna kominn inn í golfið líka Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júní 2026 09:00 Viktor Hovland fagnaði sigri sínum á mótinu með því að taka Víkingaróðurinn með löndum sínum sem fjölmenntu til að hvetja hann áfram á Travelers-golfmótinu. Getty/Andrew Redington Norski kylfingurinn Viktor Hovland tryggði sér sigur á Travelers Championship-golfmótinu á PGA-mótaröðinni eftir umspil á móti Bandaríkjamanninum Scottie Scheffler. Norskir fótboltaáhugamenn létu sig ekki vanta og studdu landa sinn.
Hovland og Scheffler þurftu að gera út um sigurinn á mánudaginn þar sem síðasta umferðin kláraðist seint vegna óveðurs og í umspilinu virtist sem báðir leikmenn hefðu sofið vel um nóttina. Bæði Hovland og Scheffler, sem er efstur á heimslistanum, spiluðu sig upp á flötina eftir tvö nánast fullkomin högg á 18. holu og báðir áttu góða möguleika á að byrja með fugli. A home away from home ❤️Viktor Hovland got plenty of love from the Norwegian fans surrounding the 18th green @TravelersChamp. pic.twitter.com/kuhx7I9b9Y— PGA TOUR (@PGATOUR) June 27, 2026 Hinn 28 ára gamli Hovland var lengra frá og átti því að pútta fyrst úr um tveggja metra færi. Þegar kylfingarnir voru á leið upp að flötinni heyrðust áhorfendur kalla: „Heimavöllur“. Það var engin tilviljun því að norskir stuðningsmenn voru furðu vel sýnilegir á móti helgarinnar. Klæddir í treyjur fótboltalandsliðsins hafa margir náð að smeygja golfmóti inn á milli leikja. Og kannski var það stuðningurinn frá Norðmönnunum sem reyndist úrslitaatriði. Hovland setti niður púttið sitt úr um tveggja metra færi, en Bandaríkjamanninum Scheffler tókst ekki að fylgja því eftir. Úr um meters færi smaug boltinn fram hjá holubarminum vinstra megin. 🚨 VIKTOR IS DOING THE VIKING ROW CHANT 🚨 pic.twitter.com/pvRQd42Ejo— Golf Channel (@GolfChannel) June 29, 2026 Þar með var ljóst að Hovland tryggði sér áttunda PGA-titilinn eftir umspil sem var lokið á innan við korteri. Hovland hefur átt erfitt tímabil hingað til. Þetta var fyrsti sigur Norðmannsins á PGA-mótaröðinni síðan í mars í fyrra. „Það var ánægjulegt að sigra í umspili gegn Scottie – besta leikmanni heims,“ sagði Hovland. „Þetta hefur verið stressandi, en þetta er ótrúlegt. Sérstaklega eftir að Scottie var svona nálægt. Ég þurfti að vera upp á mitt besta og hann kallaði það fram úr mér, ég gæti ekki verið hamingjusamari,“ sagði Hovland í sigurviðtalinu. Eftir að sigurinn var í höfn náðu sjónvarpsmyndavélarnar mynd af móður Hovlands, Galinu Hovland, meðal áhorfenda. Þetta var í fyrsta skipti sem hún sá son sinn vinna á PGA-mótaröðinni. „Pabbi hefur ekki séð mig vinna, en nú hefur mamma að minnsta kosti gert það. Ég gæti ekki verið hamingjusamari,“ sagði Norðmaðurinn með breitt bros. Norðmennirnir komu líka með „Víkingaróðurinn“ sem hefur farið sem eldur í sinu um leikvangana á HM auk þess að sjást á neðanjarðarlestarstöðvum og í verslunarmiðstöðvum eða hvert sem þeir fara. Hovland hafði aldrei séð þetta með eigin augum fyrr en á laugardaginn. Þegar því var lokið settist hann niður með fólkinu sínu og þau sýndu honum hvernig þetta er gert. „Maður fær klárlega adrenalínkikk út úr þessu,“ sagði Hovland. Víkingaróður Norðmanna er því kominn inn í golfið líka. Replay every shot from Viktor Hovland vs. Scottie Scheffler at the @TravelersChamp Monday playoff. pic.twitter.com/Uc33rKiXbO— PGA TOUR (@PGATOUR) June 29, 2026
Golf Mest lesið Slóst eftir leik og var rekinn út af: „Viðbrögðin í leikslok voru hræðileg“ Fótbolti Kevin Keegan látinn Enski boltinn Þekkt hnefaleikakona látin aðeins 26 ára gömul Sport Tove nýtti tímann sinn á Íslandi til hins ítrasta Sport Messi felldi tár í leikslok: „Enginn draumaendir“ Fótbolti Leik lokið: FH – Breiðablik 0-0 | Markalaust þrátt fyrir fjölda færa Íslenski boltinn Þrettán ára drengur lést í fagnaðarlátum á Spáni Fótbolti Uppgjör: Keflavík – ÍA | Slátrun á Suðurnesjunum Íslenski boltinn Íslenska víkingaklappið lifir: FH-strákarnir unnu Gothia Cup Sport Gætu misst bæði Messi og landsliðsþjálfarann sinn Fótbolti Fleiri fréttir Rory var „fastur í hlutlausum“ allt mótið og segist vera á leið í frí „Ég fann ekki fyrir neinu við púttið því allt skalf svo mikið“ Scheffler segir DeChambeau „klárlega ekki vera svindlara“ Fox sýndi stáltaugar og vann sitt fyrsta risamót Young flaug inn í toppbaráttuna og Scheffler skammt undan Aron og Guðrún með forystu fyrir lokahringinn McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Burns leiðir á Birkdale og líkur á sögulegum sigri Sá þriðji sem jafnar vallarmetið Púttin að leika Scheffler grátt DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti DeChambeau einu höggi frá toppsætinu eftir fugla á lokaholunum Íslendingar í stórum hlutverkum á The Open Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti Stuttu pútti frá besta hring sögunnar „Of mörg heimskuleg mistök“ Hafði aldrei komið til Evrópu en nú er hann efstur á Opna breska Vonar að hann fái að halda áfram að reykja „Er það ekki fullkominn dagur? Golf og fótbolti“ „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ „Ég er svo lélegur í golfi“ Ragnhildur hlaut hálfa milljón í þriðja sæti í Englandi Gunnlaugur Árni íþróttakarl ársins í LSU Íslensku liðin hófu leik á Evrópumótinu í holukeppni Gunnlaugur Árni vann Arnold Palmer-bikarinn Tveir íslenskir kylfingar í efstu tíu sætunum Bjargaði fugli úr tjörn í miðjum golfhring Fá að skoða sjúkraskrár Tigers Woods Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa Hvorki Haraldur né Gunnlaugur fara á Opna breska Sjá meira