Lýsa yfir þungum áhyggjum af notkun gervigreindar við tónlistarsköpun Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 30. júní 2026 07:46 Félagið beinir orðum sínum sérstaklega að bandaríska útgefandanum Universal Music Group. EPA/SARAH YENESEL Félag íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og systursamtök þess á Norðurlöndum lýsa yfir alvarlegum áhyggjum vegna vaxandi samstarfs plötuútgefenda við tæknifyrirtæki og stafræna tónlistarþjónustu, þar á meðal Spotify um notkun gervigreindar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu.
Þar er bent á að plötuútgefendur hafi farið að leyfa notkun á tónlistarsöfnum sínum í þjálfun gervigreindar og framleiðslu á tilbúnni tónlist, án þess að leita samþykkis þeirra hljómlistarmanna sem hljóðfæraleikurinn og raddirnar eru upprunar frá. Er plötuútgefandinn Universal Music Group (UMG) sérstaklega nefndur sem dæmi í tilkynningunni, félagið hafi þegar gert samninga við gervigreindarfyrirtæki eins og Udio og Spotify og leitar nú jafnframt að nýjum heimildum frá flytjendum í gegnum uppfærðar samningsklásúlur, sem félagið segir að bendi til þess að upprunalegu samningarnir hafi aldrei veitt slíkar heimildir. FÍH og hin norrænu systurfélögin undirstriki sérstaklega stöðu hljómlistarmanna í bakgrunni, það er hljómlistarmanna sem spila á hljóðupptökum án þess að vera nafngreindir á þeim. Réttindi þeirra séu að jafnaði ekki háð skriflegum samningum við plötuútgefendur og því geti útgefendur ekki borið hönd yfir höfuð sér þegar komi að leyfisveitingum fyrir gervigreind. Félögin segjast hafna alfarið öllum tilraunum útgefenda varðandi að gera tilkall til réttinda ónafngreindra flytjenda í tengslum við gervigreind. Yfirlýsinguna styðji einnig FIM (alþjóðasamband stéttarfélaga tónlistarflytjenda),IAO (alþjóðasamband tónlistarflytjenda) og BÍL (Bandalag íslenskra listamanna) „Tónlist er ekki bara gögn. Hún er mannleg tjáning, sköpunarkraftur og menning,“ segir í yfirlýsingunni. FÍH og öll norrænu félögin sem undirrituðu fara fram á að plötuútgefendur, gervigreindarfyrirtæki og stafrænar tónlistarþjónustur taki beinan þátt í samningaviðræðum við fulltrúa hljómlistarmanna og að framtíð gervigreindar í tónlist byggi á kjarasamningum sem tryggi samþykki, gagnsæi, sanngjarna þóknun og virðingu fyrir listrænum réttindum.
Tónlist Gervigreind Höfundar- og hugverkaréttur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin Sjá meira