Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Kjartan Kjartansson skrifar 1. júlí 2026 08:00 Rodney Coronado, leiðangursstjóri Leiðangurs 86 á vegum Paul Watson Foundation. Nafn leiðangurs er bein vísun í herferð Sea Shepherd gegn hvalveiðum Íslendinga árið 1986. vísir Leiðangursstjóri á skipi Pauls Watson var annar tveggja manna sem sökkti hvalskipum í Reykjavík og vann skemmdir á hvalstöð á níunda áratugnum. Hann hefur síðan setið inni fyrir eldsprengjuárás en á seinni árum afneitað ofbeldisfullum aðgerðum.
Coronado fæddist í Kaliforníu árið 1966 og er af ættbálki Yoeme-frumbyggja. Hann hneigðist ungur til herskárrar baráttu fyrir dýra- og umhverfisvernd. Þannig hann gekk til liðs við Sea Shepherd-samtök Watson á níunda áratugnum. Í slagtogi við annan mann sökkti Coronado tveimur skipum Hvals í Reykjavíkurhöfn og vann spellvirki á hvalstöðinni í Hvalfirði í nóvember árið 1986. Hann var þá tvítugur. Þeir flúðu svo land án þess að lögreglu tækist að hafa hendur í hári þeirra, þrátt fyrir að klukkutíma seinkun hefði orðið á flugferð þeirra frá landi. „Þetta var lengsti klukkutími sem ég hef nokkurn tíma lifað,“ sagði Coronado í viðtali við kanadíska blaðið Globe and Mail tólf árum síðar. Þetta hefði verið fyrsta skemmdarverkið sem hann vann í nafni umhverfisverndar. „Lífshættulegur ofbeldisseggur“ Ófögrum orðum var farið um Coronado í íslenskum fjölmiðlum eftir skemmdarverkin. Honum var þannig lýst sem „lífshættulegum ofbeldissegg“ í DV 11. nóvember 1986. „Rodney Coronado er lífshættulegur ofbeldisseggur sem ekki mundi víla fyrir sér að myrða menn í þágu málstaðarins,“ hafði blaðið eftir Joni Mortensen, varðstjóra í færeysku lögreglunni sem hafði átt viðskipti við Coronado og félaga í færeyskri lögsögu. Sakaði Mortensen liðsmenn Sea Shepherd um að hafa reynt að brenna gúmmíbáta undan færeyskum lögreglumönnum þegar þeir eltu skip samtakanna í júlí þetta sama ár. Frét úr Morgunblaðinu frá föstudeginum 14. nóvember 1986. Corondo (t.h.) og Paul Watson (t.v.) sjást þar á blaðamannafundi í New York eftir skemmdarverkin á Íslandi.Skjáskot af timariti.is Þegar til Bandaríkjanna var komið efndu Watson og Coronado til blaðamannafundar. Þar sagðist Coronado engar áhyggjur af því að verða framseldur til Íslands. „Ef Bandaríkin framselja mig leggja þau þar með blessun sína yfir brot Íslands gegn samþykktum Alþjóðahvalveiðiráðsins,“ sagði Coronado og Morgunblaðið hafði eftir honum. Íslenskir blaðamenn virðast sumir hafa lagt hlutlægni til hliðar í umfjöllun sinni eftir skemmdarverkin. Þannig skrifaði Ólafur Arnarson, blaðamaður DV, um Watson eftir að hann hitti hann í New York að það hefði vakið athygli sína að „hvernig sem saumað var að þessum ofbeldismanni þá æstist hann aldrei upp“. Ólafur lýsti Coronado jafnframt sem „ræfislegum pjakki“. „Allt sem hann sagði virtist vera meira eða minna bein eftiröpun á því sem leiðtogi hans, Paul Watson, hafði áður sagt,“ skrifaði Ólafur 15. nóvember árið 1986. Eldsprengjuárásir á loðdýratilraunastofur Eftir skemmdarverkin á Íslandi var Coronado kominn á bragðið. Hann tók meðal annars þátt í að trufla refaveiðar í Bretlandi, skotveiðar í Kaliforníu og vann spellvirki á pelsaverslunum í Kanada. Hann var virkur í starfi róttækra umhverfissamtaka eins og Earth First! og Animal Liberation Front. Síðarnefndu samtökin stóðu fyrir hrinu eldsprengjuárása á tilraunastofur með loðdýr. Coronado afplánaði sjálfur þriggja og hálfs árs fangelsisvist á tíunda áratugnum fyrir aðild að eldsprengjuárás á tilraunstofu Ríkisháskólans í Michigan í Bandaríkjunum þar sem tilraunir voru gerðar á loðdýrum árið 1992. Í viðtali við dagblað þess háskóla mörgum árum síðar sagðist Coronado óhikað myndu endurtaka leikinn. „Ég iðrast alls ekki neins og ég vona að það sama gerist áfram í Ríkisháskólanum í Michigan og í öllum öðrum háskólum sem gera tilraunir á dýrum,“ sagði Coronado við blaðið og haft er eftir í grein bandarísku mannréttindasamtakanna Anti-Defamation League um Animal Liberation Front. Farinn í úlfana Á fyrsta áratug þessarar aldar var Coronado fangelsaður í tvígang í tengslum við skemmdarverk. Hann afneitaði síðar skemmdarverkum og ofbeldi sem aðferðum í baráttu í þágu umhverfisins. Frá 2013 er hann sagður hafa einbeitt sér að verndun úlfa í Bandaríkjunum. Coronado sagði samtök Pauls Watson friðsöm í viðtali við Ríkisútvarpið á dögunum. Þau trúi aftur á móti svokallaða „ágengni án ofbeldis“ og að leiðangursmenn við Ísland séu tilbúnir að leggja líf sitt að veði til þess að stöðva hvalveiðarnar. „Fyrst af öllu vil ég biðja íslensku þjóðina afsökunar því þegar ég kom til Íslands fyrir fjörutíu árum kom ég í skjóli nætur. Og ég fór í skjóli nætur, svolítið eins og glæpamaður. Mér fannst það nauðsynlegt vegna ógnarinnar við alþjóðlegt bann við hvalveiðum og ógnarinnar við tilvist langreyða,“ sagði Coronado í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær.
Hvalveiðar Bandaríkin Dýraheilbrigði Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Hvalir Tengdar fréttir Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Hvalveiðiskipið Hvalur 8 dró tíunda hval veiðivertíðarinnar að landi á öðrum tímanum í dag en þjóðsöngur Íslands var spilaður í hátalarakerfi á höfninni meðan á verkinu stóð. Þá mátti heyra menn hrópa „áfram Ísland“ og tók einn starfsmaður Hvals sig til og sveiflaði getnaðarlim hvalsins að tökumanni fréttastofunnar. 30. júní 2026 14:54 Mest lesið „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Innlent Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Erlent Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Innlent Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Innlent Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni Innlent Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Innlent Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Innlent Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Fleiri fréttir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum „Skólinn okkar er alltof lítill“ Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Sjá meira
Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Hvalveiðiskipið Hvalur 8 dró tíunda hval veiðivertíðarinnar að landi á öðrum tímanum í dag en þjóðsöngur Íslands var spilaður í hátalarakerfi á höfninni meðan á verkinu stóð. Þá mátti heyra menn hrópa „áfram Ísland“ og tók einn starfsmaður Hvals sig til og sveiflaði getnaðarlim hvalsins að tökumanni fréttastofunnar. 30. júní 2026 14:54