Michael Byrne er látinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 1. júlí 2026 10:13 Ernst Vogel, leikinn af Byrne, tekur Elsu Schneider, leikin af Alison Doody, í gíslingu í Indiana Jones and the Last Crusade. Breski leikarinn Michael Byrne, sem er þekktastur fyrir leik sinn í Braveheart, Indiana Jones and the Last Crusade og Tomorrow Never Dies, er látinn, 82 ára að aldri.
Breski miðillinn The Guardian greindi í gær frá andláti Byrne sem lést 20. júní síðastliðinn og lætur eftir sig ekkjuna Carole Nimmons, tvær dætur þeirra og þrjú barnabörn. Dánarorsök Byrne liggur ekki fyrir. Byrne fæddist 7. nóvember 1943 í Lundúnum, sonur einstæðrar móður. Hann lærði leiklist við The Central School of Speech and Drama og hóf að leika í sjónvarpi og á sviði á sjöunda áratugnum. Byrne hoppaði yfir á stóra skjáinn á áttunda áratugnum og skapaði sér nafn í stríðsmyndunum The Eagle Has Landed (1976), A Bridge Too Far (1977) og Force 10 from Navarone (1978). Alls lék Byrne í rúmlega fimmtíu kvikmyndum á ferlinum, þar á meðal í ýmsum Hollywood- stórmyndum. Þekktasta hlutverk hans er sennilega sem SS-herforinginn Ernst Vogel sem fornleifafræðingurinn Indiana Jones þarf að eiga við í Indiana Jones and the Last Crusade (1989). Byrne lék jafnframt illmennið Smythe í Braveheart (1995), aðmíral í Bond-myndinni Tomorrow Never Dies (1997) og Gellert Grindelwald í næstsíðustu myndinni um Harry Potter. Samhliða áratugalöngum ferli á stóra skjánum lék Byrne einnig á sviði og í ýmsum breskum sjónvarpsþáttum, þar á meðal sápuóperunni Coronation Street.
Andlát Bretland Hollywood Bíó og sjónvarp Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Patrick Stewart látinn Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Fleiri fréttir Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Enn og aftur dæmdur í fangelsi Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Glee snýr aftur Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Sjá meira