Innherji

Sér­eignar­sjóðir skilað tals­vert lakari á­vöxtun þrátt fyrir meiri á­hættu

Hörður Ægisson skrifar
Vægi erlendra hlutabréfa er hlutfallslega mun minna í eignasafni séreignarsjóða, eða um 26 prósent, á meðan það var 41 prósent hjá samtryggingardeildum lífeyrissjóðanna – en sá eignaflokkur hefur skilað hæstu umfram ávöxtun í íslenskum krónum.
Vægi erlendra hlutabréfa er hlutfallslega mun minna í eignasafni séreignarsjóða, eða um 26 prósent, á meðan það var 41 prósent hjá samtryggingardeildum lífeyrissjóðanna – en sá eignaflokkur hefur skilað hæstu umfram ávöxtun í íslenskum krónum. Vísir/Getty

Séreignarsjóðir hafa að jafnaði skilað talsvert lakari árlegri ávöxtun en samtryggingardeildir lífeyrissjóða síðasta aldarfjórðung, samkvæmt nýrri rannsókn, jafnvel þegar leiðrétt er fyrir áhættu í eignasafninu og hærri kostnaði. Umgjörðin í kringum séreignarsparnað, þar sem einstaklingar velja sjálfir þátttöku og fjárfestingarleiðir og hagnaðardrifin fjármálafyrirtæki gegna stóru hlutverki, er sögð hafa haft neikvæð áhrif á árangur kerfisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×