Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. júlí 2026 08:20 Inga Sæland er mennta- og barnamálaráðherra. Vísir/Vilhelm Barna- og menntamálaráðherra segir misræmi í einkunnagjöf við útskrift nemenda úr grunnskóla búa til falskt öryggi. Verið sé að mismuna nemendum sem komast ef til vill ekki í sitt fyrsta val um framhaldsskóla vegna þessa. Þá er hún döpur yfir fylgi Flokks fólksins sem mælist utan þings.
Fyrr í vikunni voru einkunnir nemenda í íslensku og stærðfræði við útskrift úr 10. bekk birtar eftir skólum á síðu Stjórnarráðsins. Það vakti athygli að í einum skólanum var yfir helmingur nemenda með hæstu einkunn, A, en í þó nokkrum var enginn nemandi með A. Tekið var fram að slíkur munur gæti ekki ráðist eingöngu af frammistöðu nemenda heldur sýndi munurinn fram á að töluvert ósamræmi væri í einkunnagjöf milli skóla. Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, segir slíkan mun veita útskriftarnemunum falskt öryggi. „Við skiljum ekki þetta bókstafakerfi fyrir utan það að það veit eiginlega enginn hvað felst í B. Ef þú færð bara til dæmis B getur það þýtt frá 3,56 upp í 8,45. Þetta er gífurlega stórt bil þarna á milli,“ segir Inga í Bítinu á Bylgjunni. A sé einkunn sem einungis afburðanemendur eigi að fá en um helmingur nemenda í Grunnskóla Seltjarnarness útskrifaðist með einkunnina A í stærðfræði. „Þessi gögn sem ég er að birta núna sýna glögglega að það þarf enginn að halda það að 57 prósent nemenda á Seltjarnarnesi séu miklu skynsamlegri og klárari í prófatöku heldur en nemendur vítt og breitt um landið, það er ekki þannig.“ Grafalvarlegt Inga telur að fyrirhuguð breyting á bókstafaeinkunnum yfir í tölustafi geti haft mikil áhrif. Þegar forsvarsmenn framhaldsskóla hefja innritun sé það þeirra fyrsta skref að breyta bókstöfunum yfir í tölustafi. „Þetta er öryggi fyrir ungmenni sem er að fá B+ í stærðfræði og síðan kemur viðkomandi upp í framhaldsskólann og hann fær 2 eða 3 eða 4 en hann var samt sem áður með mjög góða einkunn og hann hélt að þegar hann mætti í skólann sinn að hann stæði bara vel,“ segir hún. „Það er grafalvarlegt hvað það er mikið ósamræmi í einkunnagjöfinni, hvað börnunum okkar er mismunað og hvað þessir vinsælu skólar, sem flestir vilja fara í Verzló, FG og Kvennó, þá er óásættanlegt að setja eitthvað eitt sveitarfélag sem er búið að koma því þannig fyrir að sextíu prósent af þeirra nemendum hljóta að vera í algjörum forgangi því að allir eru með A.“ Döpur yfir fylginu Talið barst að öðru í lok viðtalsins en í gær voru birtar niðurstöður Þjóðarpúls Gallup þar sem Flokkur fólksins mælist utan þings. „Þá er að bæta því við að ég er ofurþakklát fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt. Ég er döpur yfir því að sjá að fylgið okkar, miðað við eljuna og atorkuna sem við erum raunverulega af huga og hjarta að leggja í okkar störf, að það skuli ekki vera betið metur að verðleikum og tekið betur um okkar,“ segir Inga. Hún alhæfir að öryrkjar og fatlað fólk hafi aldrei átt sér aðra eins málsvara á Alþingi. „Við vorum að fá tæp 14 prósent og tíu þingmenn, ég æskist þess að fólkið okkar skoði verkin sem við erum raunverulega að vinna.“
Skóla- og menntamál Grunnskólar Börn og uppeldi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Innlent Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Óraði ekki fyrir að ákvæðinu yrði beitt til að sleppa morðingja Innlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Fleiri fréttir Eigendur Santé ákærðir fyrir vínsölu og peningaþvætti Allir í skýjunum með almyrkvann: Himnanir opnuðust á hárréttum tíma Greiddu atkvæði gegn ráðningu nýs bæjarstjóra Fjallabyggðar Gott að vera temmilega tortrygginn Sjá-liðar þekkjast boðið sem Þorgerður afþakkaði Óraði ekki fyrir að ákvæðinu yrði beitt til að sleppa morðingja Eftirköst almyrkvans og Rauðagerðismorðinginn laus úr haldi Fluttu veikan kajak-ferðalang Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Alin upp við að skrifa frekar skilaboð en að hringja „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Telur mikilvægi Viðreisnar aukast ef viðræðum verður hafnað Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Sjá meira