Átti Amin að sjá rautt? Valur Páll Eiríksson skrifar 3. júlí 2026 09:19 Þórsarar voru forviða yfir því að Amin væri ekki vísað af velli. Sýn Sport Akureyringar kröfðust þess að Amin Cosic, leikmaður KR, sæi rautt spjald í leik við Þór norðan heiða í gær. Hann virtist traðka á Christian Greko Jakobsen, leikmanni Þórs.
Í útsendingu Sýnar Sport frá leiknum í gær virtist Amin slá til Jakobsen og traðka á fæti hans er KR-ingar voru að undirbúa hornspyrnu. Klippa: Amin brýtur á Jakobsen „Þetta bara einfaldlega má ekki og Amin Cosic er bara ljónheppinn að sleppa þarna með skrekkinn. Vægt til orða tekið heppinn þarna,“ sagði Kristinn Kjærnested sem lýsti leiknum. Jóhann Ingi Jónsson, dómari leiksins, virðist ekki hafa séð atvikið og afhafðist ekkert vegna þess. Vegna þess að ekki var tekið á atvikinu kann að vera að aganefnd KSÍ taki það sérstaklega fyrir á fundi. Nefndin hefur heimild til þess að taka fyrir atvik sem teljast sem ofsafull hegðun og dæma leikmann í bann eftir á. Þetta er svo innilega viljandi. Klárt rautt og Amin ætti með réttu að byrja í banni þegar hann kemur heim úr atvinnumennsku eftir max 2 ár pic.twitter.com/QKZQiQUTs5— Aron Elvar Finnsson (@AronElvar97) July 2, 2026 Fari Amin í bann vegna atviksins er alls óljóst að hann taki það bann út fyrr en seint og síðar meir. Allt bendir til þess að hann hafi spilað sinn síðasta leik fyrir KR, í bili, í gær. Hann er á leið til Noregsmeistara Viking í Stafangri. Skiptin hafa þó ekki verið staðfest. Leikur dagsins var skrautlegur og lauk með 3-3 jafntefli. Þór komst 3-0 yfir á fyrsta stundarfjórðungi leiksins þökk sé furðulegum mörkum. Eitt var beint úr hornspyrnu og annað skoraði markvörður liðsins af 70 metra færi líkt og sjá má hér. KR kom til baka og tryggði stig fyrir heimför í Vesturbæinn.
KR Besta deild karla Þór Akureyri Mest lesið Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira