Hitatölurnar hækka fyrir austan Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. júlí 2026 20:56 Einar Sveinbjörnsson er veðurfræðingur. Vísir/Vilhelm Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, segir að hitinn gæti farið upp í allt að 25 stiga hita á Austurlandi um helgina. Mikill gangur sé í veðrinu. „
Það eru heitir púlsar að koma úr suðvestri og það er gangur í veðrinu. Þetta er ekki eins og stundum á sumrin þar sem hann leggst í einhvern farveg og hann er bara í einhverja viku, tíu daga eða svoleiðis veður,“ segir Einar sem ræddi málin í Reykjavík síðdegis. Í gær fór hitinn yfir tuttugu stig á Norðaustur- og Austurlandi og sömuleiðis í dag. Þrátt fyrir að svalara loft komi yfir landið inn á milli er ekki að fara að kólna í veðri. Næsti svokallaði heiti púls mótast nú við austurströnd Bandaríkjanna og Kanada en kemur til Íslands um helgina. „Það verður ansi hlýtt, sérstaklega á Austurlandi. Einnig gæti það farið í 20 til 25 stig þar sem best lætur,“ segir Einar. „En það fylgir þessu dálítill vindur, sérstaklega á Norðvestur- og Norðurlandi, þá getur orðið dálítil suðvestanátt með þessu. Við þurfum að skoða það þegar nær dregur, það er svona strekkingsvindur eða allhvass vindur þegar hlýja loftið er að koma til okkar.“ Miðað við þessar veðuraðstæður mun hins vegar ekki sjást mikið til sólar á Suður- og Vesturlandi. Kaldur sjór suður af Grænlandi hafi áhrif á loftstraumana. Ekki bara gott veður fyrir austan Þrátt fyrir að íbúum á Suður- og Vesturlandi líði þannig þá segir Einar það ekki rétt að það sé alltaf gott veður fyrir austan. „Ef þú ferð alveg aftur til 2015 eða svo þá getur þú fundið fréttir um vol og víl Austfirðinga um að það væri bara búið að vera þoka og leiðindi hjá þeim. Góða veðrið væri fyrir sunnan og vestan. En málið er það að það eru bara mikil áraskipti í þessu,“ segir hann. „Ég held það hafi verið sumarið 21 sem var alveg svakalega hlýtt fyrir norðan og austan, bæði í júlí og ágúst voru sett met og maður horfir kannski til þess sem viðmiðis núna. Vissulega hafa komið góðir kaflar fyrir norðan og austan flest undanfarin sumur en það hefur líka alveg verið fínasta veður sunnan og vestanlands svona heilt yfir undanfarin sumur og það er dálítið langt síðan við höfum fengið svona sumar sem hefur verið hrakviðrasamt.“ Hitatölurnar þurfi að fara yfir 25 stiga hita til þess að Einar fari að lyfta brúnum. Á Suðvesturlandi má þó búast við ágætisveðri um helgina án rigningar. „Þetta er þannig að háloftavindurinn rekur lægðardrög eða smálægðir úr suðvestri sem fara hratt yfir þannig að það er stutt á milli rigningarbakkanna.“
Veður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Sjá meira