Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Sigurgeir Þorkelsson skrifar 10. júlí 2026 08:00 Marine Le Pen mætti galvösk í viðtal kvöldið sem dómurinn féll og tilkynnti um forsetaframboð. EPA Marine Le Pen, forsetaframbjóðandi Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi, er hvergi af baki dottin eftir að hafa hlotið dóm fyrir fjárdrátt og hefur formlega hafið framboð sitt til forseta.
Le Pen var ekki til setunnar boðið eftir að dómur hafði verið kveðinn upp og hélt sinn fyrsta viðburð daginn eftir, í fyrradag, í bænum La Flèche sem er inn til landsins í landinu norðvestanverðu. Þjóðfylkingin sigraði þar í sveitarstjórnarkosningum í mars en þegar Le Pen mætti á svæðið beið hennar hópur mótmælenda. Í umfjöllun Le Monde kemur fram að hún hafi meðal annars ætlað að heimsækja bæjarmarkaðinn en hafi varla komist lengra en fimm metra frá bílnum. Eftir að hafa rætt við fjölmiðla og látið taka af sér nokkrar myndir hvarf hún aftur inn í bílinn, að því er blaðið greinir frá. Áfrýjar dómnum og frestar þannig fullnustu refsingar Le Pen hefur þegar áfrýjað dómnum til Hæstaréttar en ekki liggur fyrir hvort úrskurðað verði í málinu áður en forsetakosningar fara fram í maí á næsta ári. Fjárdráttarmálið snýst í stuttu máli um það að Þjóðfylkingin hafi nýtt fé sem hún fékk frá Evrópusambandinu, til að reka flokksstarf sitt á Evrópuþinginu, í starf flokksins í Frakklandi. Le Pen hlaut skilorðsbundinn dóm og var ekki bannað að bjóða sig fram til opinberra embætta næstu árin, líkt og margir höfðu búist við að niðurstaða dómsins yrði. Það hefði þýtt að hún væri ekki gjaldgeng til forsetaframboðs. Þá kvað dómurinn á um að hún þyrfti að bera ökklaband í ár en með því að áfrýja til Hæstaréttar hefur Le Pen frestað fullnustu dómsins. Út frá þessu hafði verið talið að hinn ungi Jordan Bardella, vonarstjarna flokksins, yrði frambjóðandi hans í næstu forsetakosningum. Le Pen hefur útnefnt Bardella sem forsætisráðherraefni sitt hljóti hún kjör, en slíkt hefur ekki tíðkast hingað til í frönskum kosningum. Bardella fylgdi Le Pen á framboðsfundinn í vikunni en blaðamanni Le Monde þótti hann líta út fyrir að vera nokkuð skúffaður. Hann hafi sýnt lítil svipbrigði og lítil viðbrögð við því sem Le Pen sagði við hópinn sem þar var saman kominn. Þótti það ólíkt þeim skælbrosandi og sjarmerandi leiðtoga sem mætt hafi á viðburði síðustu vikna. Þykir sigurstranglegust sem stendur Le Pen hefur náð í seinni umferð forsetakosninganna síðustu tvö skipti en í Frakklandi er kosið á ný milli tveggja atkvæðahæstu frambjóðendanna úr fyrstu umferð til að skera úr um hver hljóti kjör sem forseti. Árið 2017 hlaut Le Pen tæp þrjátíu og fjögur prósent gegn Emmanuel Macron og fimm árum síðar, árið 2022, hlaut hún 41,5 prósent. Eins og er mælist hún með mest fylgi allra í fyrri umferð og samkvæmt mælingum getur enginn hinna líklegu kandídata annarra flokka skákað henni í seinni umferð. Rétt er þó að taka fram að enn er tæpt ár í að gengið verði að kjörborðinu. Mikill óstöðugleiki hefur einkennt frönsk stjórnmál síðustu ár en Frakkland hefur átt sex forsætisráðherra frá því að Jean Castex tók við embætti í júlí 2020.
Frakkland Kosningar í Frakklandi Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Líkfundur við Austurbæjarskóla Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Fleiri fréttir Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Sjá meira