„Við erum að svara kalli tímans“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 12. júlí 2026 17:00 Ómar og Tryggvi Már, ritstjórar Eyjafrétta. Aðsend Nýtt blað fjölmiðilsins Eyjafrétta markar tímamót en það er í fyrsta sinn sem reglulegt tölublað miðilsins kemur eingöngu út á vefnum. Ritstjóri blaðsins segir breyttar venjur kalla á breytingar. „
Okkur er nauðugur einn kostur, við erum að svara kalli tímans,“ segir Ómar Garðarsson, ritstjóri dagblaðsins Eyjafrétta. „Við erum að feta sömu braut og aðrir því að prentun og pappír, flutningskostnaður og dreifing, tekjurnar standa ekki undir því.“ Í tilkynningu á síðu vefsins segir að nú verði áherslan lögð á rafræna útgáfu en þrjú til fjögur vegleg prentblöð verða gefin út á ári. Ómar segir að eitt prentað blað verði gefið út í kringum Þjóðhátíð og annað um jólin. Eyjafréttir hét fyrst um sinn Fréttir og má stofnun blaðsins rekja til löngunar Guðlaugs Sigurðssonar, prentara í Prentsmiðjunni Eyrúnu, að setja á stofn eigin prentsmiðju. Hann ásamt þremur öðrum stofnuðu félagið Eyjaprent ehf. en þegar nýja prentvélin var á leið með Herjólfi til Vestmannaeyja hófst eldgos á Heimey. Starfsemi Eyjaprents hófst 1973 og ákváðu mennirnir fjórir að gefa út eigið héraðsfréttablað sem fékk nafnið Fréttir. Fyrsta blaðið kom út þann 28. júní 1974. Um 26 árum síðar, árið 2000, var vefmiðillinn Eyjafréttir.is stofnaður. Árið 2012 var nafni Frétta breytt í Eyjafréttir til samræmis vefmiðlinum. Í dag starfa tveir ritstjórar og tveir blaðamenn í hlutastarfi sem sinna bæði blaðinu og vefmiðlinum. „Þetta er öflugur hópur og það er enginn í fullu starfi. Ég er ritstjóri prentútgáfunnar, Tryggvi Már ber ábyrgð á Eyjafréttum.is og svo eru tveir öflugir blaðamenn, Annika Vignisdóttir og Kristín Erna Sigurlásdóttir.“ Kostir og gallar á breyttum tímum Ómar segir forsvarsmenn Eyjafrétta hafa reynt að fresta ákvörðuninni eins lengi og unnt var. Auglýsingasala hafi hins vegar gengið illa framan af ári sem hafði áhrif á ákvörðunina. „Mín kynslóð vill hafa eitthvað í hendi en ungt fólk í dag og jafnvel fólk komið á miðjan aldur,“ segir Ómar og tekur fram að sé einhver áskrifandi í vandræðum með að nálgast rafrænu útgáfuna séu starfsmenn fjölmiðilsins tilbúnir til aðstoðar. Á sama tíma og hann syrgir séu þó einnig jákvæðar breytingar. Til að mynda verður núna hægt að birta nýrri fréttir í rafrænni útgáfu blaðsins. „Við létum prenta uppi á landi og blað sem við gengum frá á mánudegi var komið í dreifingu á fimmtudag. Núna getum við gert allt samstundis,“ segir Ómar. „Kostirnir eru líka að þarna þarftu ekki að vera að spá í hvern einasta fersentimeter, þarna geta bæði myndir og texti fengið að njóta sín miklu betur. Svo er hægt að hafa alls konar tengingar af blaðinu inn á hljóðfæla, myndbönd og myndir.“ Við dagblöðum líkt og Eyjafréttum blasir breyttur heimur. Þau séu samt sem áður ekki af baki dottin. „Þú færð ákveðið verkefni og þá verður þú að klára það og ég held að þessi útgáfa okkar sýni mikinn metnað og vilja til þess.“
Fjölmiðlar Vestmannaeyjar Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Sjá meira