Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Eiður Þór Árnason skrifar 13. júlí 2026 23:35 Sjóðurinn styrkir meðal annars kaup á rafbílum. Vísir/Vilhelm Áætlað er að verkefni sem styrkt voru af Loftslags- og orkusjóði árið 2025 muni spara 23 milljónir olíulítra og raforku sem nemur 59 gígavattsstundum á ársgrundvelli. „
Raforkusparnaðurinn samsvarar árlegri raforkunotkun um 15.000 heimila eða um 20.000 rafbíla - nær þreföldum fjölda þeirra bifreiða sem sjóðurinn styrkti á árinu. Samdráttur í losun [gróðurhúsalofttegunda] vegna styrktra verkefna er talinn nema 52 kílótonnum af kolefnisígildum á ársgrundvelli sem nemur um 2% af samfélagslosun Íslands á árinu 2024,“ segir í ársskýrslu sjóðsins. Þetta er niðurstaða stjórnar sjóðsins sem áætlar að sá olíu- og raforkusparnaður sem sjóðurinn hafi stuðlað að í fyrra geti verið verðmetinn á 93 milljarða króna yfir fimmtán ára tímabil. Sá ábati er sagður rúmlega áttfaldur á við kostnað sjóðsins vegna styrktra verkefna. Loftlags- og orkusjóður styrkti verkefni fyrir tæpa 10,6 milljarða króna á árinu 2025. Rétt innan við helmingur var vegna kaupa á fólks- og sendibílum. Styrkti um 7.200 ökutæki Stjórn Loftslags- og orkusjóðs er skipuð af umhverfis- og orkumálaráðherra en sjóðurinn styður verkefni sem er ætlað að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og auka hlut innlendra endurnýjanlegra orkugjafa. Hann styður einnig verkefni sem stuðla að orkuöryggi og samkeppnishæfni í orkumálum í samræmi við loftslagsmarkmið stjórnvalda. Sjóðurinn varð til í júlí 2024 og er árið 2025 því fyrsta heila starfsár hans. Sjóðurinn styrkti 7.199 ökutæki á árinu 2025, þar af 6.724 fólks- og sendibíla og 453 hóp- og vörubifreiðar. Einnig voru styrkir veittir í tengslum við orkusparandi aðgerðir í gróðurhúsum, nýtingu og leit að jarðhita, tæknilausnir í landbúnaði, nýsköpunarlausnir í iðnaði og fleira.
Orkuskipti Loftslagsmál Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Sjá meira