Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar 14. júlí 2026 11:02 Hvar er skattpeningunum okkar varið. Vandann þekkja öll, sum viðurkenna hann á meðan öðrum finnst hann ekki vera vandamál sem þarfnast úrlausnar. Byggðaþróun á Íslandi er ekki eingöngu afleiðing markaðslögmála heldur einnig afleiðing pólitískra ákvarðana. Massinn sogar til sín Það er höfuðborgarhyggjan. Ríkisvaldið mótar búsetu með stöðugu aðdráttarafli. Að verja skattfé borgaranna á einum stað umfram annan. Að nýta gæði samfélagsins og náttúrunnar til uppbygging á einum stað umfram annan. Á einu horni landsins. Þar sem gýs nú reglulega. Þar býr flest fólk í dag. Það var síður en svo raunin ef við förum örfá ár aftur í tímann. En vegna þess að massinn er þar sogar það mesta orkuna til sín. Undanfarin ár hafa átt sér stað búferlaflutningar vegna þess að samfélagið hefur sammælst um að byggja upp á einum stað landsins. Ísland ekki einsdæmi en eitt öfgakenndasta dæmið þó Mörg ríki hafa fundið lausn á þessu á meðan við Íslendingar köllum það ölmusu eða vonda stjórnsýslu. Að byggja upp opinber störf hringinn í kringum landið. Eistar fóru þá leið að flytja heilt ráðuneyti frá höfuðborginni til þeirrar borgara þar sem menntun og menning vex hvað hraðast og mest, það er um tveggja klukkustunda akstur þangað frá höfuðborginni. Hvernig væri að byrja á því að flytja Menntamálastofnun til Húsavíkur? Viðurkennum við verkefnið? Með því að dreifa störfum sem víðast vex krafan um auknar og bættar samgöngur. Það hefði áhrif á innanlandsflug og háhraðanettengingu. Þörfin fyrir háskólamenntað fólk vex allsstaðar á Jörðinni og það er líklegast til að setjast að á einum stað á landinu umfram aðra. Þetta er einn mesti og stærsti menningarvandi sem við glímum við Íslendingar. Of mörg viðurkenna hann ekki, hvað þá að vilja takast á við hann. Dreifð byggð er auðlind enda framleiðir landið allt tekjur fyrir samfélagið. Ójafnvægi byggða Hið efnahagslega góðæri undanfarinna ára hefur verið nýtt til að byggja upp á þessum eina stað. Þetta veldur rótleysi og óróleika. Jafnvel veldur það fólki kvíða í hinum dreifðu landsbyggðum sem er bundið átthagafjötrum og getur sig hvergi hreyft. Það hefur skapast ójafnvægi milli byggðalaga. Svo mikið að gjá hefur myndast af mannanna völdum. Menningin mótar Höfuðborgarsvæðið virkar eins og segull. Lykillinn er að skapa menningarlegt mótvægi við höfuðborgarsvæðið. Það er menningin sem skiptir hér mestu máli. Það þarf að skapa önnur menningarsvæði sem valkost til búsetu. Ekki síst þarf að skapa fjölbreytt atvinnulíf. Ójafnvægið kostar Það er þörf á viðhorfsbreytingu. Að fólk sjái kosti þess að búa utan höfuðborgarsvæðisins. Að njóta friðsældar og nábýlis við náttúruna. Fólk þarf sjálft að finna hvar það vill staðsetja sig. Ábyrgð hins opinbera er rík og mikil. Ímyndum okkur óbreytta þróun næstu 50 árin? Hvernig verður staðan þá varðandi jafnræði til búsetu? Munum að þetta eru mannanna verk, ekki lögmál. Við getum breytt þessu. Ójafnvægi er farið að kosta mjög mikla fjármuni. Á meðan innviðafjárfesting stendur víða vannýtt kallar vöxtur höfuðborgarsvæðisins á dýrar samgönguframkvæmdir, skóla, leikskóla, heilbrigðisþjónustu og sífellt dýrarar húsnæði. Byggðastefna snýst ekki um að veikja höfuðborgarsvæðið heldur um að styrkja Ísland sem heild. Þegar tækifærum er dreift jafnast álagið, fleiri svæði blómstra og þjóðin verður sterkari í heild. Höfundur er kennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar