Verður íslenska hitametið slegið á morgun? Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 14. júlí 2026 16:07 Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur Vegagerðarinnar, spáir í spilin. Vísir/Vilhelm Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur telur íslenska hitametið, 30,5 gráður á Teigarhorni góðviðrissumarið 1939, nokkuð öruggt en að aðstæður til að metið verði loksins slegið séu nokkuð ákjósanlegar á Austurlandi og Héraði á morgun.
Einar fer yfir breyturnar og það sem þarf til að metið verði slegið á Facebook. Samkvæmt spákorti Veðurstofunnar rekur 564 dekametra þykktarlínu inn á Austurland frá því seinnipartinn í dag og þar til í fyrramálið. Fyrir þau okkar sem botna ekkert í þessu er þarna mælt þykkt á milli 1000 og 500 hPA flatarins. Á mannamáli þýðir meiri þykkt heitara loft í neðri hluta lofthjúpsins. Þykktin lofar góðu Þykkt í kringum 565 dekametra er fátíð yfir landinu, að sögn Einars. Hún hafi verið hérna í hitabylgjunni miklu í ágúst 2004 í tvo til þrjá daga samfellt, og svo aftur 24. og 25. ágúst í eftirminnilegum hlýindum fyrir austan árið 2021. Þá mældust 29,4 stig á Hallormsstað. Önnur breyta segir Einar að sé hiti í 850 hPA. Sextán stig í þeirri hæð, það sem spáð er á morgun fyrir austan, er með því allra hæsta sem hér hefur sést. Svipað var uppi á teningnum ágústdagana 2021 og um 15 til 16 í hlýindunum 2004. Sólskin gegnir að auki tvíþættu hlutverki að sögn Einars. Sólin hitar yfirborðið og þar með loftið í lægstu lögum, en hjálpar líka til við blöndun við efri lög og eykur þannig óstöðugleika loftsins. Sólarleysi, þó hlýtt loft sé, gerir það að verkum að hlýjasta loftið í eins til þriggja kílómetra hæð nær ekki til yfirborðs og flýtur yfir og fram hjá. Í dag er skýjað fyrir austan en í fyrramálið léttir til. Mánuður frá sólstöðum Tími ársins spilar einnig inn í. Það munar enda um sólarhæðina við sumarsólstöður þegar methitinn 30,5 gráður mældist árið 1939 og svo mánuði síðar eins og nú. Annað sem dregur úr möguleikanum á að metið verði slegið er tími dagsins. Hlýjasta loftið staldrar við yfir nóttina og snemma morguns en úr dregur heldur úr hitagæðum eftir hádegi á morgun. Eins er spáð háskýjabreiðu frá miðjum degi. „Að framansögðu tel ég og þrátt fyrir allt minna en 50% líkur á að hámarkshiti landsins á viðurkenndum hitamæli á morgun fari yfir 30,5°C. En það gæti hæglega mælst mest 28 til 30°C,“ segir Einar að lokum
Veður Mest lesið Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Innlent Bílvelta austan við Hvalnes Innlent Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Erlent Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Innlent Fleiri fréttir Verður íslenska hitametið slegið á morgun? Ekki að vænta mikilla breytinga í veðri Mest 27 gráður en Reykvíkingar þurfa að bíða Væta vestantil en hlýjast fyrir austan Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Gular veðurviðvaranir í kortunum Bjart og allt að tuttugu og fimm stig á Austurlandi Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Dregur úr vætu síðdegis og hiti að átján stigum Hitatölurnar hækka fyrir austan Varhugaverðar hviður á Suðurlandi Víða allhvass vindur og úrkomubakki nálgast Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Allt að sautján stiga hiti Bjart og hlýtt sunnan heiða Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Hlýjast fyrir austan Kaldi eða strekkingur á suðvestan- og vestanverðu landinu Væta með stífri norðaustanátt Stíf norðanátt með rigningu víða um land Allvíða skúrir og lægð nálgast Víða rigning en hiti að átján stigum Úrkoma í flestum landshlutum í dag Úrkoma víða og hiti að sextán stigum Víða skúraleiðingar og hiti að fimmtán stigum Sextán stig en líkur á síðdegisskúrum Bjartviðri suðvestanlands en líkur á skúrum Allhvasst suðaustantil og sums staðar rigning Viðrar vel til hátíðarhalda á höfuðborgarsvæðinu Hiti að átján stigum norðan og vestantil Sjá meira