Lífið

Grande byrjuð aftur með fyrr­verandi

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Myndin er frá árinu 2016 en Grande og Alvarez voru par á árunum 2015 og 2016.
Myndin er frá árinu 2016 en Grande og Alvarez voru par á árunum 2015 og 2016. Getty

Stórstjarnan Ariana Grande og Ricky Alvarez eru byrjuð aftur saman eftir að hafa stungið saman nefjum í nokkrar vikur. 

Dægurmiðillinn People greinir fá þessu og segir að sést hafi til þeirra saman síðustu vikur en að parið sé að „taka því mjög rólega.“ Grande og Alvarez voru par á árunum 2015 og 2016 en Alvarez var dansari (e. backup-dancer) Grande. 

Grande og Alvarez héldu vinskap sínum áfram í kjölfar sambandsslitanna 2016.Getty

Alvarez er nefndur á nafn í smelli Grande Thank U, Next frá árinu 2018 þar sem Grande taldi upp nokkra af sínum fyrrverandi kærustum „Wrote some songs about Ricky / Now I listen and laugh,“ söng Grande. Nýverið hafi hún hins vegar breytt textanum að laginu á tónleikum og sungið „Wrote some songs about Ricky / I know he’s still got my back.“

Stutt er síðan greint var frá því að Grande og leikarinn Ethan Slater væru hætt saman eftir þriggja ára samband. Þau hafi fellt hugi saman við tökur á söngleikjamyndinni Wicked en heimildir vestanhafs herma að tvíeykið sé enn góðir vinir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.