Formúla 1

Verstappen breytir bílnum eftir tvo á­rekstra

Andri Broddason skrifar
Max Verstappen hefur átt erfitt tímabil en ætlar að breyta sínum afturvæng til þess að fá stöðugleika.
Max Verstappen hefur átt erfitt tímabil en ætlar að breyta sínum afturvæng til þess að fá stöðugleika. Clive Rose/Getty Images

Max Verstappen mun breyta afturvængnum á Red Bull-bifreið sinni í Formúlu 1. Hann hefur klesst á í síðustu tveim keppnum og má ástæðuna rekja til afturvængs bílsins.

Tveir bílaframleiðendur í Formúlu 1 hafa verið með svokallaðan „macarena afturvæng“ sem vísar í það að hann opnast í öfuga átt líkt og bíllinn sé að dansa. Ferrari og Red Bull eru bílaframleiðendurnir sem hafa innleitt þennan væng í bílinn sinn en nú mun Verstappen hafa afturvæng sem opnast og lokast á hefðbundinn hátt.

Fram- og afturvængir á Formúlu 1-bílunum opnast á ákveðnum stöðum til að keyra hraðar í beinni línu. Annars eru vængirnir lokaðir svo bílarnir fái meira grip í beygjum.

Í lokahluta tímatakanna fyrir austurríska kappaksturinn missti Verstappen stjórn á bílnum sínum og endaði í veggnum. Það sama gerðist í breska kappakstrinum þegar aðeins fjórir hringir voru eftir. Max Verstappen var þá í þriðja sæti keppninnar og í góðri stöðu til að standa á verðlaunapalli í annað skiptið á tímabilinu.

Redbull-liðið hefur rannsakað hver orsök árekstranna var og komsit að þeirri niðurstöðu að afturvængur Verstappen var vandamálið. Redbull ætlar því að skoða hvað gerist með hefðbundinn afturvæng um helgina þegar belgíski kappaksturinn fer af stað.

Hér fyrir neðan má sjá samanburð á „macarena afturvæng“ Red Bull og Ferrari ásamt afturvæng Mercedes sem opnast á hefðbundinn hátt:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×