„Erfitt að spila svona leiki á milli Evrópuleikja“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. júlí 2026 13:19 Jón Þór Hauksson á erfitt verkefni fyrir höndum í dag, í miðri Evrópuleikjatörn. Vísir / Diego „Alltaf gaman að spila við KR, eitt stærsta lið landsins og alltaf gaman að kljást við þá,“ segir Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar, fyrir heimsóknina á Meistaravelli síðar í dag. Stjarnan getur stokkið upp í efri hluta deildarinnar með sigri en mun þurfa að sigrast á þreytunni og líklega gera það án fyrirliða síns, Guðmundar Kristjánssonar.
Stjörnuliðið lenti í flugi frá Færeyjum á föstudag, eftir 5-3 sigur í einvígi gegn Víkingi Götu. Jón Þór segir ferðaþreytuna eina stærstu áskorun liðsins fyrir stórleik dagsins gegn KR. „Það er áskorun, og ekki eins og við fáum einhvern þægilegan og góðan leik inn á milli verkefna. Það fer mikil orka í að spila á móti KR, þannig að við erum búnir að haga okkar undirbúning þannig, eins vel og við getum. Þetta var auðvitað þægilegt ferðalag til Færeyja en það útheimtir samt orku, að vakna eldsnemma og fara í flug, allt þetta… Menn hafa þurft að hugsa vel um sig síðustu daga, svo við getum mætt með sem mesta orku í Frostaskjólið í dag.“ Tveir nýir leikmenn eru komnir með leikheimild hjá Stjörnunni fyrir leik dagsins, varnarmaðurinn Ari Leifsson og framherjinn Árni Vilhjálmsson. „Ari hitti okkur bara fyrst þegar við komum heim frá Færeyjum [á föstudag], þannig að hann er alveg nýkominn til liðs við okkur. Árni hefur fengið fleiri daga. Það er aldrei að vita nema þú fáir að sjá eitthvað af þeim en þeir eru báðir bara að koma sér fyrir og það tekur auðvitað tíma.“ Stjarnan verður þó væntanlega án fyrirliðans Guðmundar Kristjánssonar, sem fór meiddur af velli í leiknum gegn Víkingi Götu á fimmtudag. „Já, hann fór snemma út af í þeim leik, fann til í nára og þau meiðsli geta oft verið ansi erfið að eiga við. Sem betur fer er hann reynslumikill leikmaður og ég held að hann hafi náð að fara út af áður en eitthvað slæmt gerðist. Ég á ekki von á því að hann verði lengi frá en þetta eru alltaf erfið meiðsli að eiga við.“ Þá eru nýjar áskoranir til að tækla hinumegin á vellinum. Amin Cosic hefur verið einn besti leikmaður deildarinnar í sumar og var nýlega seldur til Noregs en á móti kom Jason Daði Svanþórsson til liðs við KR-inga. „KR-liðið í heild sinni er bara feykilega öflugt lið, nöfnin trufla mig ekki í því samhengi, en það er auðvitað alveg ljóst að því fylgja áskoranir. Það er erfitt að spila svona leiki á milli Evrópuleikja, eins og við sáum hjá Víkingunum í gær þá getur þetta verið snúið. Við teljum okkur vera undir það búna að mæta orkumiklu KR liði í dag, nöfnin á leikmönnum KR eru það minnsta sem truflar mig. Hvort sem þeir heita Jason, Amin eða hvað sem er. Það er númer eitt, tvö og þrjú að mínir menn mæti klárir í slaginn.“ Leikur KR og Stjörnunnar verður í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland klukkan 15:50.
KR Stjarnan Besta deild karla Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Uppgjörið: FH-Apollon 1-0 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Fótbolti Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Allt teymi Heimis framlengir Fótbolti Fleiri fréttir Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn