Gætu misst bæði Messi og landsliðsþjálfarann sinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. júlí 2026 11:32 Lionel Scaloni gengur fram hjá heimsbikarnum með silfurverðlaunin um hálsinn. Getty/Dan Mullan Lionel Scaloni, þjálfari argentínska fótboltalandsliðsins, segist þurfa tíma til að hugsa um framtíð sína eftir að samningur hans rennur út í lok árs 2026.
Argentína tapaði 1-0 í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í gærkvöldi þar sem mark frá Ferran Torres í seinni hálfleik framlengingar tryggði Spáni sigurinn. Eftir leikinn var Scaloni, sem leiddi Argentínu til heimsmeistaratitils árið 2022 auk sigra í Copa América 2021 og 2024, óákveðinn um framtíð sína. Með hugmynd um hvað hann vill gera „Ég mun ræða við forseta argentínska knattspyrnusambandsins en ég hef nokkurn veginn hugmynd um hvað ég vil gera. Ég mun klára samninginn minn og sjá svo til,“ sagði Scaloni. „Heiðarlega sagt finn ég þörf fyrir að hugsa minn gang því ég veit ekki hvort við munum geta gert eitthvað jafn stórkostlegt og þetta. Við þyrftum að ræða saman. Ég er þakklátur forseta sambandsins fyrir að gefa mér þetta tækifæri. Að vera í þeirri stöðu sem ég er í, sem er draumur allra. Við reyndum allt til síðustu mínútu að gefa allt okkar, þjálfarateymið og leikmennirnir. Ég held að það sé bara rétt að ég taki mér tíma til að hugsa,“ sagði Scaloni. Scaloni var með tárin í augunum undir lok blaðamannafundar síns þegar hann leit til baka yfir tíma sinn með Argentínu. Hann tók fyrst við sem bráðabirgðaþjálfari árið 2018 fyrir tvo vináttuleiki í september, gegn Gvatemala og Kólumbíu. Hann skrifaði síðan undir framlengingu og varð fastráðinn þjálfari liðsins og leiddi Argentínu til titilsins árið 2022. Hann skrifaði formlega undir aðra framlengingu árið 2023 til að vera áfram þjálfari Argentínu til ársins 2026. Þurfum að endurstilla okkur „Þessi staður sem við komust á er stórkostlegur. Til að halda áfram þurfum við margt. Við þurfum að endurstilla okkur. Við þurfum að mynda hóp eins og þennan, sem er erfitt að mynda aftur,“ sagði Scaloni. Argentínska landsliðið gæti því bæði misst Lionel Messi, sem lék væntanlega sinn síðasta landsleik í gær, og landsliðsþjálfarann sinn. Hafa verið stríðsmenn Scaloni lauk máli sínu með því að lýsa þakklæti sínu til leikmannanna og þjóðarinnar fyrir stuðninginn, „Ég verð að þakka þessum hópi leikmanna, þeir hafa verið stríðsmenn,“ sagði Scaloni. Lið Scalonis virtist vera orðið bensínlaust á leiðinni í úrslitaleikinn, sem innihélt þrjár ótrúlegar endurkomur í útsláttarkeppninni – gegn Grænhöfðaeyjum, Egyptalandi og Englandi – og með aldraðan hóp, þar sem átta af ellefu byrjunarliðsmönnum höfðu verið í byrjunarliðinu í sigri þeirra í úrslitaleik heimsmeistaramótsins 2022.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Körfubolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Körfubolti Fleiri fréttir Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Sjá meira