„Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. júlí 2026 22:11 Sölvi Geir Ottesen var sáttur með sína menn í leikslok en hefði ekki slegið hendinni á móti einu marki í viðbót fyrir seinni leikinn. vísir/diego Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, hrósaði sínum mönnum eftir sigurinn á Beer Sheva, 2-1, í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Hann sagði Víkinga hafa sýnt mikinn styrk í leiknum þrátt fyrir mótbyr.
Nikolaj Hansen skoraði bæði mörk Víkings. Það fyrra kom á 48. mínútu en gestirnir frá Ísrael jöfnuðu þremur mínútum seinna eftir að Daníel Hafsteinsson missti boltann á slæmum stað. Beer Sheva náði í kjölfarið góðum tökum á leiknum en eftir mark sem var dæmt af liðinu snerist pendúllinn aftur í átt til Víkings. „Það er bara að halda áfram að trúa á okkar leik, trúa á að við komum til baka. Þú átt erfiða kafla í öllum leikjum en svo lengi sem þú lætur það ekki hafa of mikil áhrif og bara heldur þér inni í leiknum og einbeitir þér að því sem þú ætlar að gera. Okkur tókst að koma okkur aftur upp úr þessu. Við fengum klaufalegt mark á okkur. Ég bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja og Danni gerði það frábærlega í leiknum,“ sagði Sölvi við Vísi eftir leik. „Svona hlutir gerast í fótbolta og það sló okkur aðeins út af laginu af því að mér fannst við vera búnir að vera sterkari aðilinn í leiknum. Mér fannst að við hefðum átt að vera búnir að skora töluvert fleiri mörk. Við fengum helling af færum til þess að skora; góð færi. Þetta var svolítið svipað og á móti Györ þar sem við erum kannski klaufar að nýta ekki þessi færi til þess að setja okkur í betri stöðu. En það var orka í strákunum, frábært hvernig þeir börðust, voru einbeittir í gegnum leikinn og misstu ekki hausinn þótt á móti blésí. Þeir eru bara búnir að vera mjög sterkir í því. Ég er mjög sáttur með frammistöðuna en ég hefði viljað aðeins meira forskot í einvíginu. Tækifæri til að setja annað mark Sölvi segir að Víkingar hafi viljað bæta þriðja markinu við undir lok leiksins. „Þetta er bara hálfleikur og ég sá enga ástæðu til þess að fara að verja eitthvað forskot í hálfleik. Það er nú sjaldan sem maður fer að verja forskotið í fyrri hálfleik og við sáum bara tækifæri til þess að reyna að setja annað mark og koma okkur í betri stöðu fyrir útileikinn,“ sagði Sölvi. Frábær pressa hjá okkur Hann kvaðst sáttur með hvernig upplegg Víkings gekk eftir í kvöld en heimamenn pressuðu gestina mjög framarlega, sérstaklega í fyrri hálfleik. „Bara frábærlega. Þetta lið spilar flottan fótbolta og í leikjunum sem við höfum séð hafa þeir stýrt leiknum með frábæru spili á milli sín. Þeim tókst það ekki í dag. Þetta var frábær pressa hjá okkur og hún virkaði vel. Þeir enduðu seinni hálfleikinn á að sparka löngum boltum fram sem er ákveðið merki um að þetta hafi verið vel gert hjá okkur,“ sagði Sölvi. „Við tókum áhættu. Við skildum þrjá og þrjá eftir aftast í vörninni og varnarmennirnir okkar leystu þetta frábærlega. Menn í næstu línu voru líka tilbúnir að vinna til baka, vinna seinni boltann og það var rosalega mikil orka sem fór í þennan leik, rosalega mikill dugnaður í strákunum og hugrekki. Þannig að ég er bara mjög sáttur með þá í dag.“ Eins og svo oft áður í Evrópuleikjum sýndi Nikolaj sínar bestu hliðar. „Það er alltaf hægt að treysta á að Niko skili inn frammistöðu og í dag bætti hann við tveimur mörkum. Þannig að ég er bara virkilega sáttur og það er gott fyrir okkur,“ sagði Sölvi að endingu.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Víkingur Reykjavík Tengdar fréttir Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Nikolaj Hansen var glaður þegar hann haltraði í viðtal eftir leik Víkings og Beer Sheva í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Hann skoraði bæði mörk Íslandsmeistaranna í 2-1 sigri þeirra. 21. júlí 2026 21:50 Mest lesið Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn Íslenski boltinn Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Fótbolti Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Golf Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf Mourinho hringdi í Ferguson og grét Enski boltinn Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Körfubolti Kominn með samning við risafyrirtæki og fær eigin pílur Sport Mátti ekki koma á HM en fær sviðsljósið annað kvöld Fótbolti Sannaði að draumar geta ræst með gamalli mynd Fótbolti Fleiri fréttir Ronaldo gifti sig í fámenni Kristall Máni skoraði og fékk rautt í dramatískum Evrópusigri Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Mátti ekki koma á HM en fær sviðsljósið annað kvöld Íslensku strákarnir byrjuðu á bekknum þegar AGF steinlá í Aserbaísjan Eyddi samfélagsmiðlum sínum PSG kvartaði yfir of litlum búningsklefa fyrir Ofurbikarinn Valgeir hefur neitað ýmsum liðum í sumar Inter Milan gerir tilboð í Spence Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mæta kýpversku meisturunum í fyrstu Evrópuleikjunum „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Dómarastjóri UEFA um VAR: „Þetta er fótbolti, ekki PlayStation“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Trump segir að það væru skelfileg mistök að koma Infantino frá völdum Mourinho hringdi í Ferguson og grét Sannaði að draumar geta ræst með gamalli mynd „Mér líður frábærlega“ Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Uppgjörið: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið Strákarnir hans Sigga Ragga skóluðu Skála og eru áfram á toppnum Sögulegur samningur fyrir kvennaknattspyrnuna í Noregi Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða UEFA og fleiri sambönd sögð farin að ræða mótahald án FIFA Sjá meira
Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Nikolaj Hansen var glaður þegar hann haltraði í viðtal eftir leik Víkings og Beer Sheva í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Hann skoraði bæði mörk Íslandsmeistaranna í 2-1 sigri þeirra. 21. júlí 2026 21:50