Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. júlí 2026 07:31 Lionel Messi hefur spilað sinn síðasta leik á HM en hann átti rosalegt og sögulegt sjötta heimsmeistaramót. Getty/Elsa Lionel Messi var ekki valinn besti leikmaður heimsmeistaramótsins, sem hneykslaði marga knattspyrnuspekinga, enda fór hann fyrir argentínska landsliðinu á mótinu og var efstur í afar mörgum mikilvægum tölfræðiþáttum hjá liðinu.
Fótboltatölfræðingar fóru líka að velta fyrir sér hvernig tölfræði Messi kæmi út í samanburði við meðaltölfræði liðsfélaga hans. Niðurstaðan af því var að frammistaða Messi á HM 2026 sló öllum öðrum við hvað varðar yfirburði meðal liðsfélaga sinna. Messi var þannig ofar en sjálfur Diego Armandi Maradona á HM í Mexíkó 1986 sem hefur verið kallað af mörgum heimsmeistaramót sem einn maður vann. Kom að 13 af 19 mörkum Messi skoraði átta mörk og gaf fjórar stoðsendingar á heimsmeistaramótinu og kom því með beinum hætti að tólf af nítján mörkum. Hann kom reyndar með beinum hætti að þrettánda markinu þar sem hefði vel mátt skrá fimmtu stoðsendinguna á hann en það var dæmt sjálfsmark og stoðsendingin þurrkuð út. Þegar svokölluð tölfræðieinkunn er reiknuð út hjá Messi og liðsfélögum hans kemur í ljós að hann var með 8,79 í meðaleinkunn en liðsfélagar hans aðeins 6,96. Hér er allt tekið fyrir eins og skot, sköpuð færi, heppnaðar sendingar, tæklingar og annað sem skráð er niður hjá hverjum leikmanni á HM. Meiri mun en hjá Maradona Þessar tölfræðieinkunnir þýða að Messi var með 1,83 í hærri meðaleinkunn en aðrir argentínskir leikmenn á þessu heimsmeistaramóti. Þegar Maradona var með fimm mörk og fimm stoðsendingar á HM í Mexíkó fyrir fjörutíu árum var hann með hærri meðaleinkunn en Messi, 9,00, en liðsfélagar hans skiluðu líka meira til liðsins að meðaltali eða 7,26 í leik. Maradona var því með 1,74 hærri meðaleinkunn en liðsfélagar sínir sem er minni munur en hjá Messi í ár. Í þriðja sæti á þessum lista er síðan Messi sjálfur frá því fyrir fjórum árum þegar hann var með 8,53 í meðaleinkunn en restin af argentínska liðinu var með meðaleinkunn upp á 7,00. Þar munaði því 1,53 og því vantaði tilfinnanlega meira frá öðrum leikmönnum til að Argentína gæti varið heimsmeistaratitilinn. Næstir á eftir eru síðan Eusebio með Portúgal 1966 og Johan Cruyff með Hollandi 1964 en allan topp tíu listann má sjá hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by Sofascore (@sofascore_latam)
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Sjá meira