Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 25. júlí 2026 13:26 Guðrún hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur frá árinu 1991 og útskrifaðist sem ljósmóðir árið 2010. Samsett Ljósmóðir með áratuga reynslu harmar að ekki hafi verið hugsað til fæðingardeildarinnar við hönnun nýs Landspítala. Nýbakaðar mæður þurfi að dvelja í þröngu rými með öðrum fjölskyldum en hún telur deildina sjálfa barn síns tíma.
Guðrún Gunnlaugsdóttir hefur starfað sem ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur hjá Landspítalanum í áratugi og skrifaði á dögunum skoðanagrein á Vísi þar sem hún spyr af hverju ekki hafi verið hugsað til fæðingardeildarinnar við hönnun nýs Landspítala. „Svo var það nú eftir annasama helgi á fæðingarvakt Landspítalans í júní sem ég var mjög hugsi þegar ég fór með fólk sem ég var að sinna í fæðingu, og þetta var búin að vera langdregin fæðing og nokkuð strembin,“ segir Guðrún. „Ég fór með þau á sængurlegudeildina og þá opnaði ég herbergið sem þau áttu að dvelja og þar var annað par á stofunni. Þá var mér hugsað til sálar minnar hvort ég væri sjálf sátt við að deila svefnherbergi með öðru pari sem ég þekki ekki neitt.“ Hún ítrekar mikilvægi þess að foreldrar fái að njóta fyrstu stunda með barninu sínu þar sem tengslamyndunin er þegar hafin. Engar upplýsingar um framtíðarsýn Oft á tíðum sé konum ráðlagt að dvelja í sólarhring á sjúkrahúsinu eftir fæðingu og alvanalegt er að þær þurfi að dvelja í herbergi, sem Guðrún segir á við hefðbundið hjónaherbergi, með annarri fjölskyldu. „Starfsfólkið þarna vinnur af mikilli fagmennsku og alúð og gerir eins vel og það mögulega getur við þessar aðstæður en aðstaðan sjálf er bara alls ekki boðleg núna árið 2026,“ segir hún. Af þeim um þrjú þúsund börnum sem fæðast á hverju ári fara 75 prósent fæðinga fram á Landspítalanum. Fæðingardeild Landspítalans er sú eina sem er sérhæfð til þess að sinna konum sem eru í áhættumeðgöngu og sú eina sem getur tekið á móti fyrirburum undir 34 vikum. „Við starfsfólkið sem sinnum fæðingarþjónustunni á Landspítala í dag höfum í rauninni aldrei heyrt neitt um framtíðarsýn spítalans fyrir þessa þjónustu. Við erum í rauninni að kalla eftir því.“ Barn síns tíma „Deildirnar í fæðingarþjónustunni eru bara barn síns tíma. Þær eru flestar í lélegu ásigkomulagi,“ segir Guðrún. „Ef eitthvað kemur upp á og þarf að flytja konuna út úr herberginu í flýti þá er það hægara sagt en gert.“ Flestir sem sækja deildina í dag eru með mikinn farangur sem endar á gólfinu vegna plássleysis auk þess sem einungis er pláss fyrir hægindastól fyrir maka. Einungis eitt salerni er fyrir alla makana á deildinni þar sem hin baðherbergin eru hugsuð fyrir barnshafandi konur. „Ég veit líka til þess að við höfum verið að missa gott fagfólk út af kvennadeildinni hreinlega vegna veikinda vegna þess að aðbúnaðurinn er ekki góður. Fólk er allavega með einkenni eftir myglu og hefur jafnvel þurft að flytja sig um stað eða hætta.“
Landspítalinn Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Fleiri fréttir Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Sjá meira