María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. júlí 2026 07:02 María Þórisdóttir lék sinn fyrsta landsleik fyrir Noreg 2015. getty/Marcio Machado Fyrr í þessum mánuði greindi norska fótboltakonan María Þórisdóttir frá því að hún væri barnshafandi. Meðgangan hefur reynst henni erfið en hún hefur deilt þeirri reynslu sinni á samfélagsmiðlum.
Þann 9. júlí tilkynnti María á Instagram að hún ætti von á sínu fyrsta barni með sambýlismanni sínum, Adrian Guntveit. María er sem kunnugt er dóttir Þóris Hergeirssonar, sigursælasta landsliðsþjálfara handboltasögunnar. Hún spilaði 71 leik fyrir norska landsliðið og lék lengi á Englandi, meðal annars með Manchester United og Chelsea. Meðgangan hefur reynst Maríu mjög krefjandi og hún hefur deilt þeirri reynslu með fylgjendum sínum á TikTok. Hún fékk góð viðbrögð og ræddi svo við Verdens Gang um þær áskoranir sem hafa fylgt óléttunni. María hefur mikið til verið rúmliggjandi, glímir við mikla ógleði og litlu mátti muna að hún yrði lögð inn þar sem hún nærðist ekki nóg. „Þetta er ekki fyrir viðkvæma. Allar sem hafa gengið í gegnum þetta eru harðjaxlar,“ sagði María sem var hreinskilin er hún var spurð hvernig heilsan væri núna. María, sem varð 33 ára í síðasta mánuði, lék í átta ár á Englandi.getty/Matt McNulty „Ekki upp á sitt besta. Hún er eitthvað betri en í byrjun en ég hef ekki orku til að gera neitt. Mér er óglatt, ég er slöpp og á ógleðilyfjum. Ég þekki mig ekki í eigin líkama. Þetta er ný tilvera sem ég kann ekki svo vel við.“ Ekki hægt að fela það lengur Fljótlega á meðgöngunni byrjaði María að finna fyrir aukaverkunum, áður en flestir vissu að hún væri barnshafandi. „Ég held að það hafi verið það versta, að þetta var á viðkvæmasta tímanum; þegar maður kemst að þessu. Svo er ekki venjan að segja neinum frá því fyrr en kannski í viku tólf þegar maður veit að það er öruggara. Svo maður stendur eiginlega ein í þessu með makanum,“ sagði María. „Mér var boðið í margt en gat ekki mætt. Ég hvarf úr öllu og fólk fór að taka eftir því að það væri eitthvað að. Því varð ég að segja fjölskyldu og vinum frá þessu strax í viku sjö því það var ekki hægt að fela það lengur. Þá hafði fólk meiri skilning á því hvað væri í rauninni að gerast. Svo vissi ég að ef eitthvað færi úrskeiðis væri þetta fólk sem ég treysti, ef maður skyldi þurfa á þeim stuðningi að halda.“ María varð tvívegis Englandsmeistari með Chelsea og einu sinni bikarmeistari.getty/Kieran Galvin María ákvað að stíga fram og deila sinni reynslu því henni finnst meðgöngusögur sem þessar ekki heyrast nógu oft. „Ef ég get hjálpað einni manneskju að finnast hún ekki vera ein var það þess virði að deila þessu,“ sagði María. Hún gekk aftur í raðir Klepp í nóvember á síðasta ári, liðsins sem hún hóf ferilinn með og lék með þar til hún fór til Chelsea 2017.
Norski boltinn Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Körfubolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Körfubolti Fleiri fréttir Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Sjá meira