Íslenski boltinn

Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir á ferðinni í leiknum á Ásvöllum í kvöld.
Sara Björk Gunnarsdóttir á ferðinni í leiknum á Ásvöllum í kvöld. vísir/hulda margrét

Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrrverandi landsliðsfyrirliði, lék í kvöld sinn fyrsta leik fyrir Hauka í átján ár. Haukar tóku þá á móti HK á Ásvöllum í Lengjudeild kvenna og lutu í lægra haldi, 0-2.

Sara Björk var í byrjunarliði Hauka og lék allan leikinn. Haukum veitti ekki af liðsstyrknum enda tapaði liðið 7-0 fyrir Keflavík í síðustu umferð.

Staðan í hálfleik var markalaus og allt fram á 78. mínútu. Þá kom Valgerður Lilja Arnarsdóttir, fyrirliði HK, sínu liði yfir.

Aðeins þremur mínútum síðar skoraði Henríetta Ágústsdóttir annað mark HK-inga sem fóru með sigur af hólmi.

Sara Björk skrifaði undir tveggja ára samning við Hauka í byrjun síðasta mánaðar.vísir/hulda margrét

Með sigrinum stökk HK upp úr 7. sætinu og í það þriðja. Liðið er með sautján stig, líkt og Haukar sem eru í 4. sætinu. Hafnfirðingar hafa tapað þremur leikjum í röð og ekki unnið sigur í síðustu fimm leikjum sínum.

Upplýsingar um gang mála og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×