Norris kom sér aftur á sigurbraut Andri Broddason skrifar 26. júlí 2026 15:14 Lando Norris náði sínum fyrsta sigri síðan hann varð heimsmeistari í Formúlu 1 á síðasta tímabili. Mark Thompson/Getty Images Ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1, Lando Norris, náði sínum fyrsta sigri á tímabilinu í ungverska kappakstrinum í dag. Miklar sviptingar voru í toppslag kappakstursins.
Lando Norris byrjaði keppnina á ráspól og keyrði frábærlega í Ungverjalandi. Oscar Piastri, liðsfélagi Norris hjá Mclaren, var sá eini sem hefði getað ógnað sigri Norris en bíllinn hans bilaði og gat hann ekki klárað keppnina. Max Verstappen náði öðru sæti keppninnar eftir að hafa kvartað verulega yfir Red Bull-bíl sínum allt tímabilið og sérstaklega um helgina. Til að byrja með var Lewis Hamilton hraðari en Verstappen en átti erfitt með að taka fram úr honum. Kimi Antonelli, ökumaður Mercedes, náði að bæta forskot sitt á toppi heimsmeistaramótsins með því að enda í þriðja sæti. Lewis Hamilton og George Russell, sem eru hans helstu keppinautar í heimsmeistaramótinu, voru fjarri góðu gamni. Hamilton átti að byrja annar eftir tímatökurnar í gær en fékk þriggja sæta refsingu fyrir að vera fyrir Oscar Piastri í tímatökunum. Hrakföllin héldu áfram að hrjá hann þar sem hann náði ekki að taka fram úr Verstappen þrátt fyrir að vera mun hraðari. Hann kláraði keppnina í fjórða sæti en liðsfélagi hans hjá Ferrari, Charles Leclerc, tekur sætið hans vegna þess að Hamilton endaði með fimm sekúndna refsingu. George Russell byrjaði keppnina í sjötta sæti en vélin hans bilaði við að taka af stað og var hann orðinn næstsíðastur í fyrstu beygju kappakstursins. Hann náði að vinna sig upp í sjöunda sæti keppninnar en tapar stigum á bæði Hamilton og Antonelli sem eru fyrir ofan hann í heimsmeistaramóti Formúlu 1. Þetta var síðasta keppni í Formúlu 1 fyrir sumarfrí sem stendur yfir í einn mánuð og er næsta keppni í Formúlu 1 hollenski kappaksturinn sem hefst í lok ágúst.
Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Enski boltinn Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tætir í sig „siðferðislega óréttlætanlega“ ákvörðun Formúlu 1 Antonelli getur orðið yngsti heimsmeistari sögunnar í næstu keppni Formúla 1 snýr aftur til Afríku Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Fór fram úr Verstappen og svo fram úr sér Býður við skrifunum: „Ég er Satan“ Hamilton vonast til þess að keppa í Afríku Varað við miklum hita yfir kappakstrinum í Singapúr Kláraði að hjóla 420 km á fjórum dögum fyrir kappakstur Áföllin halda áfram að dynja á Russell Vill sjá breytingar svo það komi ekki annað klúður Hjólar yfir 350 kílómetra í næstu keppni Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Sjáðu ruglið í Formúlunni í morgun Verstappen vann skrautlega keppni Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Kunnugleg framlína í Malasíu Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Heimsmeistarinn biðst afsökunar: „Tilfinningarnar báru mig ofurliði“ Segir Horner vera að trufla Ferrari Vill að mótherji hans fari í bann eftir árekstur Antonelli klessti á og Russell næstum sekúndu hraðari en aðrir Stytta keppnir í Formúlu 1 Hamilton segist ekki hafa beðið um að reka fólk úr liðinu Verstappen tók fram úr hundrað ökuþórum Antonelli stefnir hraðbyri í átt að heimsmeistaratitli Ætlar ekki að hlusta á sófasérfræðinga sem vita ekki neitt Sögulegur ráspóll heimsmeistarans Sjá meira